Vopnafjarðarhreppur
Sveitarstjórn - 6
== Fundur nr. 6 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
AÖS
Axel Örn SveinbjörnssonNefndarmaður
AÓS
Aðalbjörg Ósk SigmundsdóttirNefndarmaður
SGS
Sigurður Grétar SigurðssonNefndarmaður
BDS
Bylgja Dögg SigurbjörnsdóttirNefndarmaður
BK
Baldur KjartanssonFjármálastjóri
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
HBÓ
Hafdís Bára ÓskarsdóttirNefndarmaður
BA
Bjartur AðalbjörnssonNefndarmaður
BHS
Björn Heiðar SigurbjörnssonNefndarmaður
HBÓ
Hafdís Bára ÓskarsdóttirNefndarmaður
BHS
Björn Heiðar SigurbjörnssonNefndarmaður
BA
Bjartur AðalbjörnssonNefndarmaður
KÓP
Kristrún Ósk PálsdóttirNefndarmaður
Fundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 22.september 2022 í félagsheimilinu Miklagarði kl 14:00. Í upphafi fundar var leitað afbrigða með því að bæta inn erindinu „Staðan á brimvarnargörðunum“ undir „Erindi“. Samþykkt samhljóða. Einnig var leitað afbrigða með því að bæta inn erindinu „Lausn frá nefndarstörfum“. Samþykkt samhljóða. Til máls tók Björn Heiðar Sigurbjörnsson áður en gengið var til formlegrar dagskrár. Vopnafjarðarlistinn bókar eftirfarandi: „Vopnafjarðarlistinn gerir athugasemd við það að sveitarstjórnarfundi sem áætlaður var eftir fundarplani 15. sept. s.l. hafi verið frestað án þess að það hafi verið samþykkt í sveitarstjórn. Samkvæmt 8 gr. í samþykktum Vopnafjarðarhrepps þarf slík breyting að fara fyrir næsta fund sveitarstjórnar á undan og vera samþykkt mótatkvæðalaust. Það var ekki gert.“ Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri tók til máls.
Fyrir liggur bréf til sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps dagsett 6.september 2022 þar sem Sigrún Lára Shanko, sveitarstjórnarfulltrúi óskar eftir ótímabundnu leyfi frá störfum í sveitarstjórn.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að veita Sigrúnu Láru Shanko ótímabundið leyfi frá störfum. Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir kemur inn sem aðalmaður og verður varamaður í hreppsráði á meðan á leyfi stendur.
Til máls tók Bjartur Aðalbjörnsson og lagði fram breytingartillögu við upphaflega bókun á þá leið að bæta við hana eftirfarandi: „Sveitarstjórn sendir Sigrúnu Láru Shanko baráttukveðjur með von um skjótan bata.“
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fyrir liggur uppfærð fjallskilasamþykkt fyrir starfssvæði SSA sem þarfnast síðari umræðu af hálfu sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að taka fyrirliggjandi fjallskilasamþykkt til síðari umræðu og afgreiðslu er hún hefur hlotið umfjöllun í umhverfis- og framkvæmdaráði.**
Tilllagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fyrir liggja drög að samningi umdæmisráðs barnaverndar á landsvísu, erindisbréf valnefndar og viðauki við samning vegna stofnunar og starfsemi umdæmisráðs barnaverndar á landsvísu. Samkvæmt innleiðingu á breytingum á barnaverndarlögum skulu öll sveitarfélög hafa skipað umdæmisráð fyrir 1. október n.k.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að taka þátt í umdæmisráði barnaverndar á landsvísu og felur sveitarstjóra að ganga frá aðild Vopnafjarðarhrepps að verkefninu.
Til máls tóku Bjartur Aðalbjörnsson og Sara Elísabet Svansdóttir.
Uppfærð tillaga lögð fram:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að taka þátt í umdæmisráði barnaverndar á landsvísu og felur sveitarstjóra að ganga frá aðild Vopnafjarðarhrepps að verkefninu og kynna fyrir fjölskylduráði.**
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Lögð fram tillaga að Svæðisskipulagi Austurlands 2022-2044 og tilheyrandi umhverfismatsskýrsla, ásamt fundargerð svæðisskipulagsnefndar dags. 2.9.2022. Fundargerðinni fylgir minnisblað þar sem nefndin svarar athugasemdum sem bárust við svæðisskipulagstillögu og umhverfismatsskýrslu sem auglýstar voru skv. 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat áætlana og framkvæmda nr. 111/2021, þann 7.7.2022. Í fundargerðinni leggur svæðisskipulagsnefnd til að sveitarstjórnir á Austurlandi samþykki svæðisskipulagstillöguna með þeim lagfæringum sem lýst er í fylgiskjali fundargerðar og færðar hafa verið inn í svæðisskipulagstillögu og umhverfismatsskýrslu.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir framlagða tillögu að Svæðisskipulagi Austurlands 2022-2044 og tilheyrandi umhverfismatsskýrslu, með vísan í 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga og 16. gr. laga um umhverfismat áætlana. Jafnframt felur sveitarstjórn svæðiskipulagsnefnd að vinna málið áfram í samræmi við fyrirmæli 3. mgr. 25. gr. skipulagslaga.**
Til máls tók Björn Heiðar Sigurbjörnsson.
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fyrir fundinum liggur 8 mánaða árshlutauppgjör Vopnafjarðarhrepps 2022
Baldri Kjartanssyni, fjármálastjóra er gefið orðið.
Til máls tóku Bjartur Aðalbjörnsson, Axel Örn Sveinbjörnsson, Sara Elísabet Svansdóttir, Baldur Kjartansson, Hafdís Bára Óskarsdóttir, Björn Heiðar Sigurbjörnsson og Axel Örn Sveinbjörnsson.
Fyrir fundinum liggur drög að erindisbréfi fyrir hreppsráð Vopnafjarðarhrepps, dagsett 29.ágúst 2022.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindisbréf fyrir hreppsráð. **
Til máls tók Bjartur Aðalbjörnsson.
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fyrir fundinum liggja drög að erindisbréfi fyrir fjölskylduráð Vopnafjarðarhrepps, dagsett 29.ágúst 2022.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindisbréf fyrir fjölskylduráð. **
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fyrir fundinum liggja drög að erindisbréfi fyrir menningar- og atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps, dagsett 31.ágúst 2022.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindisbréf fyrir menningar- og atvinnumálanefnd. **
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fyrir fundinum liggja drög að erindisbréfi fyrir umhverfis- og framkvæmdarráð Vopnafjarðarhrepps, dagsett 29.ágúst 2022.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindisbréf fyrir umhverfis- og framkvæmdarráð. **
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fyrir fundinum liggja drög að erindisbréfi fyrir ungmennaráð Vopnafjarðarhrepps, dagsett 6.september 2022.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindisbréf fyrir ungmennaráð. **
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Lögð fram tillaga að nefndarlaunum sveitarstjórnar og nefnda á vegum sveitarstjórnar. Launin taka mið af launaflokki 70 hjá Fræðagarði BHM, persónuálag 16.
Mánaðarlaun alls: 1.082.896 kr.
Lagt er til að laun oddvita verði 13% hlutfall af launaflokki 70-16.
Laun sveitarstjórnarfulltrúa verði 7% af launaflokknum. Auk þess fær sveitarstjórnarfulltrúi fyrir hvern fund það sem nemur 2% af launaflokknum.
Þeir sem sitja í nefndum fyrir sveitarfélagið fá 2% af launaflokknum fyrir hvern setinn fund og nefndarformenn fá 4% fyrir hvern setinn fund.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir tillögu að nefndarlaunum Vopnafjarðarhrepps og vísar þeim til fjárhagsáætlanargerðar 2023.**
Bjartur Aðalbjörnsson leggur fram eftirfarandi bókun: Á vordögum var tveimur fráfarandi hreppsnefndarfulltrúum - í samvinnu við sveitarstjóra - falið að skoða kjaramál nefndarfólks í sveitarfélaginu og leggja fram tillögu um breytingu á þeim. Frá þeim kom tillaga sem er hér lögð fram sem breytingartillaga Vopnafjarðarlistans:
Föst laun oddvita sveitarstjórnar 149.630 kr
Föst laun sveitarstjórnarfulltrúa 83.128 kr
Fyrir hvern fund 24.938 kr
Fyrir hvern fund nefndarfólks: 24.938 kr
Fyrir hvern fund varamanna: 24.938 kr
Formenn fagráða 49.878 kr
Til máls tóku Bjartur Aðalbjörnsson, Sara Elísabet Svansdóttir, Baldur Kjartansson og Björn Heiðar Sigurbjörnsson.
Til máls tók Bjartur Aðalbjörnsson sem lagði til að vísa erindinu til hreppsráðs.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Bjartur Aðalbjörnsson óskar eftir fimm mínútna fundarhléi.
Fundarhlé er samþykkt með handauppréttingu.
Fyrir liggur erindi frá fundi umhverfis og framkvæmdarráði dagsett 5.september 2022 um umsókn frá Vegagerðinni um stofnun vegsvæðis úr landi Skjaldþingsstaða samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps heimilar stofnun vegsvæðisins.**
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fyrir liggur erindi frá fundi umhverfis- og framkvæmdarráði dagsett 5.september 2022 um umsókn frá Vegagerðinni um stofnun vegsvæðis úr landi Syðri-Víkur samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps heimilar stofnun vegsvæðisins. **
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fyrir liggur erindi frá fundi umhverfis- og framkvæmdarráði dagsett 5.september 2022 um umsagnarbeiðni varðandi nýja veglínu yfir Brekknaheiði.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps fór yfir erindið og framlögð gögn og metur að ekki sé tilefni til athugasemda af hálfu Vopnafjarðarhrepps.**
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Hafdís Bára Óskarsdóttir óskar eftir því að víkja af fundi og inn kemur varamaður í hennar stað, Kristrún Ósk Pálsdóttir.
Fyrir liggur tillaga til auglýsingar fyrir deiliskipulag miðbæjar Vopnafjarðarhrepps.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. Deiliskipulagið verði auglýst samhliða tillögu að verndarsvæði í byggð enda sé um að ræða sama svæði og eina af grunnforsendum deiliskipulagsins.**
Til máls tóku Björn Heiðar Sigurbjörnsson, Sara Elísabet Svansdóttir, Bjartur Aðalbjörnsson og Axel Örn Sveinbjörnsson.
Axel Örn Sveinbjörnsson dregur til baka upprunalegu tillögu og leggur til að fresta málinu til næsta fundar sveitarstjórnar.
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Lagt fram til kynningar.
Fyrir liggur erindi frá hreppsráði dagsett 1.september 2022 um að setja upp nýtt tjaldsvæði á Merkistún.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að halda núverandi tjaldsvæði opnu á meðan þörf þykir og að senda þessa tillögu til umsagnar hjá umhverfis- og framkvæmdarráði, ,menningar- og atvinnumálanefnd og fjölskylduráð og taka hana síðan til afgreiðslu.**
Til máls tóku Bjartur Aðalbjörnsson, Björn Heiðar Sigurbjörnsson og Axel Örn Sveinbjörnsson.
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
8.september var send fyrirspurn á Vegagerðina varðandi stöðuna á viðgerðinni á brimvarnargörðunum. Staðan þá var að Vegagerðin áætlaði að útboðsgögnin yrðu tilbúin fyrir útboð eftir sirka 3-4 vikur frá þeirri dagsetningu.
Til máls tóku Axel Örn Sveinbjörnsson, Björn Heiðar Sigurbjörnsson og Bjartur Aðalbjörnsson.
Axel Örn Sveinbjörnsson óskar eftir fundarhléi.
Fundarhlé samþykkt með handauppréttingu.
Eftirfarandi tillaga lögð fyrir fundinn:
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Hafrún Róbertsdóttir hefur beðið um lausn frá nefndarstörfum í fjölskylduráði.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
**Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir ósk hennar um lausn frá nefndarstörfum í fjölskylduráði og tekur varamaður sæti hennar til að byrja með.**
Tillagan er borin upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Til máls tóku Bjartur Aðalbjörnsson, Björn Heiðar Sigurbjörnsson, Sara Elísabet Svansdóttir, Kristrún Ósk Pálsdóttir og Axel Örn Sveinbjörnsson.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjóri fór yfir verkefni sveitarfélagsins og svaraði spurningum.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 17:27.