Fjarðabyggð
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 8
**1. 2208083 - Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2023**
|Framhald umræðu um fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagssviðs frá síðasta fundi. Lagt fram yfir frá fjármálastjóra um teksturinn í fyrra og í ár ásamt fyrstu tillögu að sundurliðaðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2023.|
| |
__Gestir__
|Snorri Styrkársson - 00:30|
**2. 2209218 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi**
|Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Urðarteig 17, Neskaupsstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.|
**3. 2205208 - 740 Melagata 12 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi**
|Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Melgötu 12, Neskaupsstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.|
**4. 2209220 - Umsókn um lóð Hafnarbraut 40**
|Sótt eru um lóð að Hafnarbraut 40, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.|
**5. 2209201 - Umsókn um lóðir Hlíðarbrekka 1-3-5-7**
|Sótt eru um lóðirnar Hlíðarbrekku 1-3-5-7, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.|
**6. 2209200 - Umsókn um stöðuleyfi**
|Umsókn um stöðuleyfi fyrir færanleg starfsmanna híbýli að Hlíðarbrekku 1-7. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stöðuleyfi fyrir fjórum íbúðagámaeiningum að uppfylltum skilyrðum viðeigandi stofnana.|
**7. 2209217 - Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku**
|Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku.Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum sviðsins að koma með úrlausn á vandamálinu og leggja fyrir að nýju.|
[Minnisblað.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=obfuj44MJUiAdy_vEZOoRA&meetingid=yMo2SucEWEmzzmYButl5ZQ1
&filename=Minnisblað.pdf)
**8. 2208118 - Fugladauði**
|Minnisblað varðandi fugladauða í Fjarðabyggð, til kynningar.|
[Minnisblað.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=w4D4bVBgD0CbQGUhMTZWA&meetingid=yMo2SucEWEmzzmYButl5ZQ1
&filename=Minnisblað.pdf)
**9. 2209189 - Ný staðsetning gámasvæða**
|Tillaga að nýjum gámasvæðum á Hjallaleiru 10, Reyðarfirði og Símonartúni, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögur að nýjum gámasvæðum á Reyðarfirði og Eskifirði. Nefndin felur starfsmönnum sviðsins að sjá til þess að frágangur og ásýnd lóðanna verði til fyrirmyndar.|
[Hjallaleira 10.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=u7T6Ml_hAUjX3Q5fRD2vg1&meetingid=yMo2SucEWEmzzmYButl5ZQ1
&filename=Hjallaleira 10.pdf)
[símonartún.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=oin9TCxLMkuafIJaIJR6gg1&meetingid=yMo2SucEWEmzzmYButl5ZQ1
&filename=símonartún.pdf)
**10. 2209151 - Geymslusvæði Eskju á Eskifirði**
|Aðgerðir varðandi geymslusvæði Eskju á Eskifirði til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samstarfi við Eskju.|
**11. 2209110 - Lystigarðurinn í Neskaupstað**
|Framlagt bréf frá Lystigarðsnefnd Kvenfélagsins Nönnu í Neskaupstað um lystigarðinn í Neskaupstað. Erindi vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs, garðyrkjustjóra og skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að funda með lystigarðsnefndinni. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir afstöðu bæjarráðs að fela sviðsstjóra framkvæmdasviðs, garðyrkjustjóra og skipulags- og umhverfisfulltrúa að funda með lystigarðsnefndinni. Nefndin tekur undir áhyggjur Lystigarðsnefndar varðandi ásýnd garðsins og styður umbætur á garðinum.|
[bréf til bæjarráðs.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=10ysTwXZok6xXfkAiSiZuA&meetingid=yMo2SucEWEmzzmYButl5ZQ1
&filename=bréf til bæjarráðs.pdf)
**12. 2209158 - Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023**
|Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023 lögð fram til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að fela starfsmönnum sviðsins að útfæra gjaldskrá í samræmi við umræðu fundarins. |
**13. 2209170 - Gjaldskrá hunda og kattahald 2023**
|Gjaldskrá hunda- og kattahalds 2023 lögð fram til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, gjaldskrá hunda- og kattahalds 2023. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.|
**14. 2209117 - Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2023**
|Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2023 lögð fram til umræðu. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum sviðsins að vinna áfram að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð í samráði við framkvæmdasvið.|
**16. 2209010F - Fjallskilanefnd - 2**
|fundagerð fjallskilanefndar 14.9.2022 lögð fram til afgreiðslu|
1. 2208084 - Starfs- og fjárhagsáætlun fjallskilanefndar 2023
Lagður fram rammi bæjarráðs að fjárhagsáætlun ársins 2023 ásamt reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023. Fjármálastjóri mun mæta á fundin og fara yfir áætlunargerðina. Fjallskilanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt fjallskilastjóra að ástandsskoða fjárréttir í Fjarðabyggð og gera verk- og kostnaðaráætlun á endurbótum.
2. 2208175 - Fjallskilasamþykkt SSA
Framlagt bréf Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um endurskoðun fjallskilasamþykktar en hún hefur tekið breytingum frá því sem hún var upphaflega afgreidd í gegnum landbúnaðarnefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Fjallskilasamþykkt hefur ekki fengið formlega afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísaði fjallskilasamþykktinni til umfjöllunar fjallskilanefndar.
Fjallskilanefnd gerir tillögu að breytingum á 22.gr Fjallskilasamþykktar sveitarfélaga á austurlandi. Þar sem fram kemur að fé skuli ekki ganga á afrétt, upprekstrarheimalandi og/eða heimalandi annarra jarða eftir löggöngur. Nefndin álítur réttara að miða við dagsetningu t.d. 20. nóvember þar sem fullorðnar ær ganga oft í heimalandi eftir löggöngur við gott atlæti.
Fjallskilanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að koma tillögunni til stjórnar SSA.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30
**16.1. 2208084 - Starfs- og fjárhagsáætlun fjallskilanefndar 2023**
**16.2. 2208175 - Fjallskilasamþykkt SSA**
**15. 2202061 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2022**
|Fundargerð 169. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð til kynningar.|
[169. fundargerð.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=k0QrcSA9lUmlaOVdh5XhnA&meetingid=yMo2SucEWEmzzmYButl5ZQ1
&filename=169. fundargerð.pdf)