Svalbarðsstrandarhreppur
Sveitarstjórn
|
|
**1. ** |
|
**Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi - 2111005**
|
||
|
Smári Jónas Lúðvíksson verkefnastjóri umhverfismála mætir á fundinn ásamt Stefáni Gíslasyni eigandi Environice sem kemur í fjarfundabúnaði til að fara yfir nýja samþykkt um meðhöndlun úrgangs ásamt því að kynna drög að nýrri svæðisáætlun sem Stefán hefur verið að vinna að.
|
||
|
*Drög að nýrri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs kynnt fyrir sveitarstjórn. *
|
|
|
||
|
|
|
**2. ** |
|
**Viðaukar - Fjárhagsáætlun 2022 - 2201004**
|
||
|
Viðauki nr.3 við fjárhagsáætlun 2022 lagður fram til samþykktar sveitarstjórnar.
|
||
|
*Sveitarstjórn samþykkti viðauka 03 við fjárhagsáætlun ársins 2022 sem gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða ársins verði jákvæð sem nemur 28.006 þús.kr. og handbært fé í árslok verði 68.210 þús.kr.*
|
|
|
||
|
|
|
**3. ** |
|
**Fjárhagsáætlun 2023-2026 - 2208014**
|
||
|
Launaáætlun 2023 lögð fram fyrir sveitarstjórn. Fjárhagsáætlunarrammi fyrir fjárhagsáætlunargerðina kynntur fyrir sveitarstjórn.
|
||
|
*Lagt fram til kynnignar*
|
|
|
||
|
|
|
**4. ** |
|
**Ályktun frá Skógræktarfélagi Íslands - 1407044**
|
||
|
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, haldinn í Mosfellsbæ dagana 2.-4. september 2022, skorar á sveitarstjórnir landsins að vinna að skipulagsáætlunum í takt við stefnu stjórnvalda um skógrækt á landsvísu og eru sveitarfélög hvött til að koma sér upp skilvirkum verkferlum og forðast óþarfa tafir og kostnað við afgreiðslu framkvæmdaleyfa vegna skógræktar.
|
||
|
*Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið.*
|
|
|
||
|
|
|
**5. ** |
|
**Umsögn um tillögur starfshóps umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um nýtingu vindorku - 2209008**
|
||
|
Starfshópurinn hefur tekið til starfa og ákveðið að hefja samráðsferli, sveitarfélögum er gefin kostur á að senda inn sjónarmið sín um álitaefni í löggjöf um vindorku miðað við þá leið sem lögð er til.
|
||
|
*Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá umsögn sveitarfélagsins í takt við umræður á fundinum.*
|
|
|
||
|
|
|
**6. ** |
|
**Breyting á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022 - íbúðarbyggð í landi Skóga í Fnjóskadal - 2209009**
|
||
|
Leitað er eftir umsögnum við tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010 ? 2022 þar sem áformað er að skilgreina frístundarbyggð við Skóga, Fnjóskadal í íbúðarbyggð.
Á sama tíma er leitað umsagna vegna breytinga á deiliskipulagi Skóga.
|
||
|
*Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022 þar sem áformað er að skilgreina frístundarbyggð við Skóga í Fnjóskadal í íbúðarbyggð. Þá gerir sveitarstjórn ekki athugasemd við breytingu á deiliskipulagi Skóga.*
|
|
|
||
|
|
|
**7. ** |
|
**Umhverfis- og atvinnumálanefnd - 25 - 2209002F **
|
||
|
*Sveitarstjórn samþykkir fundargerðina.*
|
||
|
7.1
|
|
**2209005 - Í upphafi kjörtímabils**
|
||
|
|
||
|
7.2
|
|
**2204009 - Verkefni sumarsins 2022 - opin svæði**
|
||
|
|
||
|
7.3
|
|
**2203007 - 2022 Vinnuskóli**
|
||
|
|
||
|
7.4
|
|
**2202009 - Umhverfisviðurkenning 2021**
|
||
|
|
||
|
7.5
|
|
**2208014 - Fjárhagsáætlun 2023-2026**
|
||
|
|
||
|
7.6
|
|
**1407215 - Sorpmál í Svalbarðsstrandarhreppi**
|
||
|
|
||
|
7.7
|
|
**2209006 - Atvinnumál í sveitarfélaginu.**
|
||
|
|
|
|
||
|
|
|
**8. ** |
|
**Flokkun Eyjafjarðar ehf 2022 - 2209007**
|
||
|
Flokkun Eyjafjarðar ehf fundargerð aðalfundar lögð fram til kynningar.
|
||
|
*Fundargerð lögð fram til kynningar.*
|
|
|
||
|
|
|
**9. ** |
|
**Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar SBE - 2108010**
|
||
|
Fundargerð embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 46 lögð fram til kynningar.
|
||
|
*Lagt fram til kynningar. *
Eftirfarandi mál voru tekin fyrir á fundinum sem tengjast Svalbarðsstrandarhreppi.
Sólheimar 17 - einbýlishús 2022 - 2208005
Sigurjón Friðjónsson, kt. 150664-2929, Blómvangi 5 220 Hafnarfirði, sækir um byggingarleyfi vegna nýbyggingar 265,2 fm einbýlishúss á lóðinni Sólheimum 17, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir frá Eyjólfi Valgarðssyni byggingartæknifræðingi dags. 2022-09-08.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hallland 15 - Einbýlishús 2022 - 2205010
Haraldur Líndal Pétursson, kt. 130478-5499 Dalsbyggð 8 210 Garðabæ, sækir um byggingarleyfi vegna nýbyggingar 327,1 fm einbýlishúss á lóðinni Hallland 15, Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir frá Rögnvaldi Harðarsyni dags. 2022-06-26.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
|
|
|
||
|
|
|
**10. ** |
|
**Fundargerð stjórnar SSNE 2022 - 2208013**
|
||
|
Fundargerð SSNE nr. 41 lögð fram til kynningar.
|
||
|
*Fundargerð lögð fram til kynningar*
|
|
|
||
|
|
|
**11. ** |
|
**2022 Hafnarsamlag fundargerðir - 2202008**
|
||
|
Fundargerð stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands nr. 272 lögð fram til kynningar.
|
||
|
*Fundargerð lögð fram til kynningar.*
|
|
|
||
|