Fjarðabyggð
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 9
**1. 2209231 - Gilsárstekkur - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
|Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Guðnýjar Harðardóttur, dagsett 29.09.2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 52m2 viðbyggingu við norðvesturenda núverandi húss á lóð við Gilsárstekks í Breiðdal. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskyldum gögnum hefur verið skilað. |
**2. 2210029 - Stekkjarholt 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
|Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Stranga ehf, dagsett 06.10.2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja parhús á lóð við Stekkjarholt 3-5 á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er tilskyldum gögnum hefur verið skilað. |
**3. 2210045 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi**
|Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hamarsgötu 15, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.|
**4. 2210013 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi**
|Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Strandgötu 68, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.|
**5. 2209203 - Ósk um umsögn, aðalskipulagsbreyting, efnistaka vegna Axarvegar**
|Ósk um umsögn, aðalskipulagsbreyting, efnistaka vegna Axarvegar. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir varðandi aðalskipulagsbreytingu er varðar efnistöku vegna Axarvegar. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að svara Múlaþingi þess efnis.|
[202203263 - Ósk um umsögn, aðalskipulagsbreyting, efnistaka vegna Axarvegar.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=IvOCIWjZqkKfFDiVv0m9tw&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=202203263 - Ósk um umsögn, aðalskipulagsbreyting, efnistaka vegna Axarvegar.pdf)
[A1596-002-U01 Námur vegna vegagerðar - tillaga á vinnslustigi.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=ZI04jVF_NESQ0EFwKAPQ&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=A1596-002-U01 Námur vegna vegagerðar - tillaga á vinnslustigi.pdf)
**6. 2210004 - Nafnabreyting Lækjarmót verður að Lækjamót**
|Nafnabreyting Lækjarmót verður að Lækjamót. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir nafnabreytinguna.|
**7. 2210020 - Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði.**
|Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd harmar að ekki hafi verið fylgt eftir áður samþykktu erindi frá áhugahóp um fjölskyldu- og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði. Nefndin vísar erindinu áfram til sviðsstjóra framkvæmdarsviðs með von um góðar viðtökur.|
**8. 2208175 - Fjallskilasamþykkt SSA**
|Framlögð uppfærð tillaga að fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur en stjórn Sambands sveitarfélag á Austurlandi hefur fjallað um framlagðar athugasemdir við fyrri drög. |
[Fjallskilasamþykkt_bréf_sveitarfélög.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=7PF9lBIlAU20PnzH1SyStw&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=Fjallskilasamþykkt_bréf_sveitarfélög.pdf)
[Fjallaskilasamþykkt SSA_til afgreiðslu seinni umræðu.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=T7StuZwejkWB68QGQ7XfkQ&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=Fjallaskilasamþykkt SSA_til afgreiðslu seinni umræðu.pdf)
**9. 2210011 - Órækt við Lækjargil og knattspyrnuvöllinn í Neskaupstað**
|Órækt við Lækjargil og knattspyrnuvöllinn í Neskaupstað. Erindi frá Sigurði Jenssyni. Umhverfis - og skipulagsnefnd felur starfsmönnum sviðsins að svara erindinu og koma með nánari útfærslur fyrir nefndina að nýju.|
**10. 2210017 - Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 1232010 (uppbygging innviða), 144. mál.**
|Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 1232010 (uppbygging innviða), 144. mál.|
Umhverfis- og skipulagsnefndin harmar allar breytingar sem verða til þess að sveitarfélög hafi minna skipulagsvald.
[Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123 2010 (Uppbygging innviða), 144. mál.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=akzp_NDbjU6yPJtDWXF8OA&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123 2010 (Uppbygging innviða), 144. mál.pdf)
**11. 2209213 - Strandgata 68 Eskifirði**
|Ingvi Þór sendi inn almenna fyrirspurn 26.09.2022 fyrir hönd Tvíhólma ehf. um að gera íbúðaraðstöðu í hluta af núverandi húsnæði að Strandgötu 68, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í fyrirspurnina og felur starfsmönnum sviðsins að svara umsækjanda.|
**12. 2210031 - Upplistun lausra lóða**
|Upplistun lausra lóða í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar vinnu við upplistun lóða í sveitarfélagi og telur hún geta aukið gagnsæi og upplýsingagildi fyrir íbúa Fjarðabyggðar. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.|
**13. 2209246 - Umsagnarbeiðni - Stækkun Mjóeyrarhafnar**
|Umsagnarbeiðni - varðandi 2. áfanga stækkun Mjóeyrarhafnar. Ekki er gerð athugasemd við 2. áfanga stækkun Mjóeyrarhafnar.|
[A1567-019-U02 Matsáætlun vegna 2. áfanga landfyllingar við Mjóeyrarhöfn.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=CWL47qALkWrJGmae90MHg1&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=A1567-019-U02 Matsáætlun vegna 2. áfanga landfyllingar við Mjóeyrarhöfn.pdf)
[Umsögn.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=F0yQ2kxynkGuJbLQ_QeUSg&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=Umsögn.pdf)
**14. 2209217 - Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku**
|Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku, tillögur Mannvits. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir að fá kostnaðaráætlun fyrir tillögu 3. Nefndin felur starfsmönnum sviðsins að vinna málið áfram og leggja fyrir nefnd að nýju.|
[Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku_Minnisblað.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=26HnMR2QAk2bzoO242Itrg1&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku_Minnisblað.pdf)
**15. 2209228 - Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar**
|Fram lagt erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar um tækifæri barna til áhrifa og ungmennaráð.|
Bæjarráð vísaði erindinu til nefnda sveitarfélagsins til umfjöllunar. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindi frá UNICEF á Íslandi og mun halda áfram að skapa barnvænar leiðir til þátttöku.
[Erindi_frá_UNICEF_til_Fjarðabyggðar.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=2VAzjBLt1UGtDxkyggZKLA&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=Erindi_frá_UNICEF_til_Fjarðabyggðar.pdf)
**16. 2210033 - Meindýravarnir**
|Meindýravarnir í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir með skipulags- og umhverfisfulltrúa og starfsmanni Heilbrigðiseftirlits Austurlands að fá meindýraeyði til þess að setja upp rottugildrur í Neskaupstað á því svæði sem hann telur best vera. Nefndin lýsir yfir áhyggjum á málefninu og felur starfsmanni að ræða við fyrirtæki í hafnsækinni starfsemi um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn meindýrum sem geta borist með skipum.|
**17. 2210036 - Þörungablómi í Reyðarfirði**
|Svar frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands varðandi þörungablóma í Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar Heilbrigðiseftirliti Austurlands fyrir svarið og lítur svo á að þessu máli sé hér með lokið.|
[Minnisblað.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=xFrOJR2qkEOO8Zp9hNeNYg&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=Minnisblað.pdf)
**18. 2210057 - Framkvæmdaleyfi **
|Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdarleyfi vegna lagningar göngustígs ofan á gamla veginn innan við byggðarkjarnann á Stöðvarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út leyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.|
[Umsókn um framkvæmdarleyfi - vegalagning, gönguslóðar og fleira.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=KTp6quKBa0e4ydQgLhxDFg&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=Umsókn um framkvæmdarleyfi - vegalagning, gönguslóðar og fleira.pdf)
[Göngustígur Stöðvarfirði.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=R4qnEI7z_EWL1HpdPMXww&meetingid=mxvufXOI50m60CGGqhI3A1
&filename=Göngustígur Stöðvarfirði.pdf)
**19. 2209170 - Gjaldskrá hunda og kattahald 2023**
|Uppfærð gjaldskrá hunda og kattahald 2023, 4,9% hækkun í samræmi við almenna verðlagsþróun. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrána.|
**20. 2209158 - Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023**
|Uppfærð gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023, 4,9% hækkun í samræmi við almenna verðlagsþróun. Umhvefis- og skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá fyrir sitt leyti.|
**21. 2210060 - Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2023**
|Uppfærð gjaldskrá gatnagerðargjöld 2023, 4,9% hækkun í samræmi við almenna verðlagsþróun. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrána.|