Fjarðabyggð
Hafnarstjórn - 285
**1. 2208077 - Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2023**
|Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2023 lögð fyrir til endanlegrar afgreiðslu. Hafnarstjórn vísar starfs- og fjárhagsáætlun til áframhaldandi vinnu.|
**2. 2209172 - Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023**
|Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023 lögð fram til umræðu. Hafnarstjórn samþykkir að gjaldskrá taki mið af verðlagsbreytingum. Verkefnastjóra hafna falið að ganga frá gjaldskrá í samræmi við samþykkt hafnarstjórnar.|
**3. 2210035 - Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers**
|Lögð fram beiðni Síldarvinnslunnar um umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers fyrirtækisins. Hafnarstjórn samþykkir að veita umsögn.|
**4. 2209228 - Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar**
|Fram lagt erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar um tækifæri barna til áhrifa og ungmennaráð.|
Bæjarráð vísaði erindinu til nefnda sveitarfélagsins til umfjöllunar.
Hafnarstjórn þakkar erindið og mun leitast eftir því í störfum sínum að leita álits ungmennaráðs ef málin snerta hagsmuni ungmenna í sveitarfélaginu.
**5. 2202086 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022**
|Lögð fram til kynningar fundargerð 445.fundar Hafnasambands Íslands|