Seltjarnarnesbær
436.(3.) fundur Íþrótta- og tómstundanefndar Seltjarnarness, haldinn fimmtudaginn 13.október kl. 8:15 á bæjarskrifstofunni.
= Fundartími íþrótta- og tómstundanefndar 2018 =
8. febrúar
Stjórnsýsla
Hér er að finna fundargerðir æskulýðs- og íþróttaráðs frá þessu ári, raðað í tímaröð. Fundargerðir annarra ára er raðað eftir ártölum í hægri dálki: "Leitað eftir árum"
Íþrótta- og tómstundanefnd
**436.(3.) fundur Íþrótta- og tómstundanefndar Seltjarnarness, haldinn fimmtudaginn 13.október kl. 8:15 á bæjarskrifstofunni.**
**Mættir voru:** Örn Viðar Skúlason, Guðmundur Helgi Þorsteinsson, Inga Þóra Pálsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson og Ólafur Finnbogason.
**Ritari fundar:** Haukur Geirmundsson.
**1. 2022100089 - Fjárhagsáætlun sundlaugar 2023**
Farið var yfir áætlun málaflokks 06.
**2. 2022100090 - Styrkbeiðni vegna markatöflu í handboltasal**
Markataflan er komin til ára sinna og hefur verið að bila í miðjum leikjum þannig að ekki er við unað. Grótta hefur fengið tilmæli frá HSÍ um að gera bragarbót á þessu svo ekki þurfi að færa heimaleiki í annað íþróttahús.
*ÍTS mælir með að ráðist verði strax í að panta nýjar markatöflur.*
**3. 2022080286 - Styrkbeiðni vegna kaupa á handboltamörkum**
ÍTS samþykkir kaup á keppnismörkum og því hægt að ganga frá þeirri pöntun. ÍTS samþykkir einnig kaup á æfingamörkum með fyrirvara um að það verði samþykkt í áætlun 2023.
**4. 2022100091 - Styrkbeiðni vegna Spánarferðar 4.fl.ka í knattspyrnu** *Samþykkt að styrkja flokkinn um kr. 140 þúsund vegna ferðarinnar samkvæmt úthlutunarreglum ÍTS.*
**5. 2022100092 - Aðsóknar og tekjutölur sundlaugar**
Farið yfir aðsóknar- og tekjutölur sundlaugar.
**6. 2022100093 - Styrkir ÍTS – staða**
Farið var yfir stöðuna á styrkjum málaflokksins.
**7. 2022100122 - Sérstakur frístundastyrkur**
Umræða fór fram um sértæk úrræði fyrir tekjulágar barnafjölskyldur á Seltjarnarnesi sem hugsanlega hafa ekki ráð á að senda börn sín í tómstundastarf.
*ÍTS mælist til að skoða málið með fjölskyldunefnd.*
Fundi slitið kl.9:15.
Þetta vefsvæði
[byggir á Eplica](http://www.eplica.is/)