Seltjarnarnesbær
156. fundur Menningarnefndar Seltjarnarness
Austurströnd 2
170 Seltjarnarnes
postur [hjá] seltjarnarnes.is
**Sími**
595 9100
Fax: 595 9101
**Afgreiðslutími**
- Mánudaga-fimmtudaga 8-16
- Föstudaga 8-13
Neyðarsími bæjarins og veitna utan skrifstofutíma
822 9150
Stjórnsýsla
Hér er að finna fundargerðir menningarnefndar frá þessu ári, raðað í tímaröð. Fundargerðir annarra ára er raðað eftir ártölum í hægri dálki: "Leitað eftir árum"
Menningarnefnd
**156. fundur Menningarnefndar Seltjarnarnesbæjar var haldinn í fundarsal Bæjarskrifstofu Seltjarnarness, fimmtudaginn 13. október 2022 kl. 16:00**
**Mættir:** Þórdís Sigurðardóttir formaður, Inga Þóra Pálsdóttir, Þröstur Þór Guðmundsson, Stefán Árni Gylfason og Bryndís Kristjánsdóttir.
**Fundargerð ritaði:** María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri Þjónustu- og samskiptasviðs.
**Dagskrá:**
**1. 2022050067 – Útilistaverk bæjarlistamanns 2022**
Sviðsstjóri kynnti stöðu mála og sýndi myndir en listamaðurinn, Þórdís Erla Zöega lauk við listaverkið nú í vikunni og einungis er lokafrágangur eftir á húsnæði hitaveitunnar við Gróttu.
*Menningarnefnd lýsir ánægju sinni með listaverkið og hrósar listamanninum og starfsfólki Seltjarnarnesbæjar er að málum komu. Nefndin leggur til að hafa formlega vígsluathöfn síðar í haust í samráði við listamanninn.*
**2. 2022010103 – Starfsemi Bókasafns Seltjarnarness**
Sviðsstjóri fór yfir fjölbreytta viðburðadagskrá októbermánaðar sem og ýmiss mál er snerta daglega starfsemi.
**3. 2022100111 – Reglur um bæjarlistamann Seltjarnarness uppfærðar**
Sviðsstjóri lagði fram drög að uppfærðum reglum um tilnefningu Bæjarlistamanns Seltjarnarness. Þær reglur sem nú eru í gildi eru frá 2014 og hafa um nokkurt skeið þarfnast lagfæringa í takt við tímann.
*Menningarnefnd samþykkir drög sviðsstjóra og vísar þeim til bæjarstjórnar til samþykkis.*
**4. 2022100110 – Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2023**
Kominn er sá tími ársins að Menningarnefnd auglýsi eftir umsóknum og tilnefningum um Bæjarlistamann Seltjarnarness 2023.
*Menningarnefnd samþykkir að auglýsa eftir miðjan október 2022 samkvæmt því sem reglur um tilnefningu bæjarlistamanns segja til um.*
Fundi slitið kl. 17.05
Þetta vefsvæði
[byggir á Eplica](http://www.eplica.is/)