Vesturbyggð
Menningar- og ferðamálaráð - 24
= Menningar- og ferðamálaráð #24 =
Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 18. október 2022 og hófst hann kl. 09:00
====== Nefndarmenn ======
- Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
- Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
- Óskar Leifur Arnarsson (ÓLA) varamaður
- Ramon Flavià Piera (RFP) aðalmaður
- Silja Björg Ísafoldardóttir (SBÍ) varamaður
====== Starfsmenn ======
- Valgerður María Þorsteinsdóttir (VMÞ) menningar- og ferðamálafulltrúi
====== Fundargerð ritaði ======
- Valgerður María Þorsteinsdóttir Menningar - og ferðamálafulltrúi
== Almenn mál ==
=== 1. Styrkumsóknir Menningar-og ferðamálaráðs - 2022 ===
Anna Vilborg Rúnarsdóttir vék af fundi undir þessum liði.
Lögð var fyrir styrkbeiðni sem barst ráðinu fyrir þriðju úthlutun ársins 2022. Afgreiðslu umsóknarinnar var áður frestað þar sem óskað var eftir frekari upplýsingum.
Menningar- og ferðamálaráð samþykkir að veita styrk að upphæð 100 þúsund krónur.
=== 2. Verkferlar við val á umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða ===
Lagt var fram minnisblað menningar- og ferðamálafulltrúa. Í minnisblaðinu var lögð fram hugmynd að verkferli sveitarfélagsins við val á umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastað hverju sinni.
Menningar- og ferðamálaráð tekur vel í hugmyndina og vísar málinu til umfjöllunar bæjarráðs.
== Mál til kynningar ==
=== 3. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða 2022 ===
Lagðar fram til kynningar umsóknir Vesturbyggðar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2022.
=== 4. Menningarstefna Vesturbyggðar ===
Lagðar fram til kynningar hugmyndir að úrlausnum við gerð menningarstefnu Vesturbyggðar.
Ráðið tekur vel í kynninguna og felur menningar- og ferðamálafulltrúa að vinna málið áfram og kynna fyrir nefndinni.
**Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30**