Skagafjörður
Félagsmála- og tómstundanefnd
= Félagsmála- og tómstundanefnd =
Dagskrá
=== 1.Reglur og samþykktir málaflokks 06 ===
2209300
Farið var yfir reglur sveitarfélagsins sem tilheyra málaflokki 06, frístundaþjónustu. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir að taka reglurnar til afgreiðslu á næsta fundi eftir því sem hægt er í samræmi við umræður og tillögur að breytingum sem þegar hafa komið fram. Einnig þarf að uppfæra allar reglur með tilliti til sameinaðs sveitarfélags.
=== 2.Reglur um Ungmennaráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar ===
2104258
Fjallað var um reglur fyrir Ungmennaráð Skagafjarðar. Félagsmála- og tómstundanefnd er sammála um að boða til fundar í Ungmennaráði hið fyrsta. Óskað verði eftir tilnefningum fjögurra einstaklinga til tveggja ára og þremur til eins árs. Þetta er gert með hliðsjón af væntanlegum breytingum á reglunum sem kveða á um skörun tilnefninga þannig að einungis skuli endurnýja helming ráðsins árlega. Að öðru leyti munu reglurnar koma til afgreiðslu nefndarinnar í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
=== 3.Reglur og samþykkir - málaflokkur 02 félagsþjónusta ===
2209308
Farið var yfir reglur sveitarfélagsins sem tilheyra málaflokki 02, félagsþjónustu. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir að taka reglurnar til afgreiðslu á næsta fundi eftir því sem hægt er í samræmi við umræður og tillögur að breytingum sem þegar hafa komið fram. Einnig þarf að uppfæra allar reglur með tilliti til sameinaðs sveitarfélags.
=== 4.Reglur og samþykktir - málaflokkur 02 málefni fatlaðs fólks ===
2209310
Farið var yfir reglur sveitarfélagsins sem tilheyra málaflokki 02, málefni fatlaðs fólks. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir að taka reglurnar til afgreiðslu á næstu fundum eftir því sem hægt er, en reglurnar taka mið af Þjónustusamningi um þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra. Einnig þarf að uppfæra allar reglur með tilliti til sameinaðs sveitarfélags.
=== 5.Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2023 ===
2209337
Lagður fram fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2023 ásamt forsendum rammans til fyrri umræðu í félagsmála- og tómstundanefnd. Farið var yfir fyrstu tillögu að skiptingu fjármuna á milli stofnana félagsmála og frístundamála. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu starfsmanna. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir framlagðan fjárhagsramma 2023 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.
Þorvaldur Gröndal vék af fundi eftir þennan málslið.
=== 6.Jólahlaðborð Rotaryklúbbs Skagafjarðar 2022 ===
2210130
Rótarýklúbbur Sauðárkróks óskar eftir að fá afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust þann 26. nóvember n.k. vegna jólahlaðborðs Rótarýklúbbsins þar sem íbúum Skagafjarðar er boðið, þeim að kostnaðarlausu. Nefndin samþykkir að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa.
=== 7.Trúnaðarbók félags-og tómstundanefndar 2022 ===
2201082
Eitt mál lagt fyrir. Fært í trúnaðarbók.
Fundi slitið - kl. 17:40.