Hvalfjarðarsveit
Fræðslunefnd 44. fundur
= Fræðslunefnd =
Dagskrá
=== 1.Kennimerki (lógó) Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar ===
2203037
Hugmyndir af útfærslum á kennimerki Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.
Rætt var um hugmyndir nefndarmanna um nýtt kennimerki fyrir Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar,
Anna Kristín Ólafsdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið.
Anna Kristín Ólafsdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið.
=== 2.Menntastefna Hvalfjarðarsveitar ===
2201038
Innleiðing Menntastefnunnar.
Umræða um innleiðingu og kynningu nýrrar Menntastefnu Hvalfjarðarsveitar en þar segir:
Innleiðing stefnunnar hefst að hausti 2022 þar sem nefndir og stofnanir sveitarfélagsins, er málið varðar, útbúa sína eigin aðgerðaráætlun til þriggja ára í senn. Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar mun jafnframt endurskoða skólanámskrá fyrir Heiðarskóla og Skýjaborg í takt við menntastefnuna með aðkomu starfsfólks, nemenda og foreldra.
Í samræmi við samþykkta menntastefnu sveitarfélagsins óskar fræðslunefnd eftir því við mannvirkja- og framkvæmdanefnd, umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd og fjölskyldu- og frístundanefnd að unnin verði aðgerðaráætlun/tímalína til næstu þriggja ára þar sem tekið verður á þeim þáttum stefnunnar er heyra undir fyrrgreindar nefndir og þeim skilað til fræðslunefndar fyrir árslok 2022. Jafnframt óskar nefndin eftir sambærilegum áætlunum frá skólastjórn Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar um innleiðingu stefnunnar.

=== 3.Frístundastefna ===
2204059
Farið yfir erindisbréf frístundastefnu Hvalfjarðarsveitar og nefndin tilnefnir einn fulltrúa í stýrishóp sem vinnur að gerð frístundastefnu Hvalfjarðarsveitar.
Fræðslunefnd samþykkir drög að erindisbréfi stýrihóps um gerð Frístundastefnu Hvalfjarðarsveitar og skipar Elínu Ósk Gunnarsdóttur sem fulltrúa nefndarinnar í hópinn.
=== 4.Erindi- starfsmannahald í Skýjaborg ===
2210042
Erindi frá leikskólastjóra.
Fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að verða við beiðni leikskólastjóra um fá að halda fagmenntuðum umframstarfsmanni í Skýjaborg í nóvember og desember 2022 með kostnaðarauka upp á kr. 1.600.000. Í janúar 2023 fjölgar börnum sem nemur stöðugildinu.
=== 5.Erindi frá skólastjóra Heiðarskóla ===
2210046
Beiðni um viðauka.
Fræðslunefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
=== 6.Trúnaðarmál ===
2108003
Mál nr. 2210055.
Fært í trúnaðarbók.
=== 7.Leikskólahúsnæði - þarfagreining 2022 ===
2202016
Minnisblað frá starfshópi um þarfagreiningu leikskólahúsnæðis.
Lagt fram. Óskir um auknar rútuferðir, skjalaskáp og tölvu hafa verið settar fram í vinnslu fjárhagsáætlunnar fyrir árið 2023.
=== 8.Miðstöð skólaþróunar-stjórnun-kennsluráðgjöf og starfsþróun ===
2208034
Fara yfir stöðuna á verkefninu.
Kynning.
=== 9.Fjárhagsáætlun fræðslunefndar ===
2210048
Fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023.
Kynning.
=== 10.Fundargerð skólaráðs 2022 ===
2210054
Fara yfir fundargerð skólaráðs.
Farð var yfir fundargerð skólaráðs.
=== 11.Ytra mat á starfi leikskóla. ===
2011017
Erindi frá Menntamálastofnun.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 18:30.
Mál nr.2210054 - Fundargerð skólaráðs 2022.
Málið verður nr. 10 á dagskrá verður það samþykkt.
Samþykkt einróma.