Suðurnesjabær
Fræðsluráð
= Fræðsluráð =
Dagskrá
=== 1.Foreldranámskeið ===
2101026
Heiða Ingólfsdóttir kennsluráðgjafi kynnti foreldranámskeið sem haldin eru á vegum fræðsluþjónustu.
=== 2.Landshlutateymi í málefnum fatlaðra barna á Suðurnesjum ===
2009114
Heiða Ingólfsdóttir kynnti skýrslu Landshlutateymis í málefnum fatlaðra barna á Suðurnesjum.
=== 3.Samþætting þjónustu í þágu barna ===
2201054
Heiða Ingólfsdóttir kennsluráðgjafi kynnti verkefnið Við saman - samþætting þjónustu í þágu barna.
=== 4.Starfsáætlun fræðsluþjónustu ===
2006082
Bryndís Guðmundsdóttir deildarstjóri fræðsluþjónustu Suðurnesjabæjar lagði fram starfsáætlun fræðsluþjónustu.
=== 5.Upphaf skólaárs í leik- og grunnskólum. ===
2210061
Bryndís Guðmundsdóttir deildarstjóri fór yfir upphaf skólaárs í leik- og grunnskólum. Í grunnskólum Suðurnesjabæjar eru 561 nemandi og í leikskólum eru 200 börn m.v tölur í ágúst/september 2022. Fjöldi kennara í báðum grunnskólunum er 70 og þar af eru 48 með kennsluréttindi eða 69%. Í leikskólum eru 57 kennarar og þar af 10 með kennsluréttindi eða um 18%.
=== 6.150 ára afmæli Gerðaskóla og Stóru Vogaskóla ===
2209037
Úrsula María Guðjónsdóttir formaður fræðsluráðs óskaði Gerðaskóla og Stóru-Vogaskóla til hamingju með 150 ára afmælin.
=== 7.Leikskólinn Sólborg ===
2209054
Úrsula María Guðjónsdóttir formaður fræðsluráðs lagði fram minnisblað frá Jóni Ben Einarssyni sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs. Hanna leikskólastjóri sagði frá stöðunni í dag og hvað er framundan.
=== 8.Lokun leikskóla á milli jóla og nýárs ===
2203128
Úrsula María Guðjónsdóttir formaður fræðsluráðs lagði fram minnisblað frá Bryndísi Guðmundsdóttur deildarstjóra fræðsluþjónustu um lokun leikskóla á milli jóla- og nýárs. Miklar umræður sköpuðust um málið. Málinu vísað áfram til bæjarráðs.
Fundi slitið - kl. 10:00.