Skorradalshreppur
Hreppsnefnd - 173. fundur
=== Hreppsnefnd Skorradalshrepps ===
Fundur nr. 173
==== miðvikudaginn 19. október 2022 kl.17:00, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn: Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Guðný Elíasdóttir, Óli Rúnar Ástþórsson og Kristín Jónsdóttir. ====
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður.
==== Þetta gerðist: ====
**Almenn mál** **1. Bréf til sveitarfélaganna vegna skipulagsáætlana og framkvæmdaleyfa til skógræktar – Mál nr. 2210006**
*Lagt fram erindi frá Skóræktarfélagi Íslands vegna ályktunar af aðalfundi félagsins vegna skipulagsáætlana og framkvæmdaleyfa til skógræktar.*
Hreppsnefnd Skorradalshrepps þakkar Skógræktarfélagi Íslands fyrir innsenda ályktun og vill jafnframt taka fram að Skorradalshreppur hefur tekið á skógrækt í aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Einnig vill Skorradalshreppur benda góðfúslega skógræktendum á að fylgja landslögum og aðalskipulagi sveitarfélagsins. Óhófleg og hugsunarlaus gróðursetning erlendra trjátegunda í þágu kolefnisbindingar sem gagnast erlendum fyrirtækjum er slæm þróun og ekki til sóma.
**2. Holtavörðuheiðarlína 1, matsáætlun – Mál nr. 2205001**
*Farið yfir stöðu mála og skipun fulltrúa í verkefnaráð. Óskað er eftir fundi með sveitarstjórn.*
Samþykkt að skipa Jón E. Einarsson og Pétur Davíðsson í verkefnaráðið. Oddvita falið að finna fundartíma í samráði skipulagsfulltrúa og verkefnaráðið.
**3. Fjárhagsáætlun 2023 – Mál nr. 2210007**
*Lögð fram fyrstu drög að fjárhagsáætlun*
Rætt um fjárhagsáætlunargerð.
**4. Útkomuspá fyrir fjárhagsárið 2022 – Mál nr. 2210009**
*Óskað er eftir að útkomuspáin og fjárhagsáætlun 2023, eins og hún verður lögð fyrir sveitarstjórn, berist eigi síðar en 1. nóvember nk.*
Lagt fram.
**5. Samþykktir sveitarfélagsins. – Mál nr. 2206006**
*Samþykktir sveitarfélagasins lagðar fram til fyrri umræðu.*
Farið yfir samþykktirnar. Samþykkt að vísa þeim til seinni umræðu.
**6. Fræðslufundur KPMG – Mál nr. 2210008**
*Fræðslufundur á vegum KPMG vegna stjórnsýslu og fjármála sveitarfélaganna.*
Oddviti skoðar með fund fyrir hreppsnefnd.
**7. Þjónusta Motusar ehf. – Mál nr. 1906001**
Farið yfir fund með Motus ehf.
JEE, PD og KJ fóru yfir fundinn.
**Fundargerðir til staðfestingar** **8. Skipulags- og byggingarnefnd – 166 – Mál nr. 2210001F**
*Lögð fram fundargerð frá 18. október s.l.*
Fundargerðin í samþykkt í öllum 4 liðum.
8.1 2206024 – Vatnshorn, friðlýsing
8.2 2210002 – Stóra-Drageyri, stofnun lóðar skátaskáli
8.3 2210003 – Fyrirspurn um áform um endurskoðun aðalskipulags
8.4 2208005 – Stálpastaðir, óleyfisframkvæmd
**Fundargerðir til kynningar** **9. Fundargerð 13.fundar stjórnar fjallskilaumdæmis – Mál nr. 2210012**
*Lögð fram til kynningar fundargerð nr.13 stjórnar fjallskilaumdæmis.*
Lögð fram.
**10. Fundargerð nr.913 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga – Mál nr. 2210010**
*Lögð fram til kynningar fundargerð nr.913 í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga.*
Lögð fram
**11. Fundargerðir Faxaflóahafna sf. nr.220-223 – Mál nr. 2210011**
*Fundargerðir stjórnar Faxaflóahafna nr.220, 221, 222, og 223 lagðar fram til kynningar.*
Lagðar fram.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 19:50.