Kópavogsbær
Lista- og menningarráð - 144. fundur
[Íbúar](/is/ibuar) [Börn og ungmenni](/is/ibuar/daggaesla-og-skolar) [Dagforeldrar](/is/ibuar/daggaesla-og-skolar/dagforeldrar) [Frístundir](/is/ibuar/daggaesla-og-skolar/fristundir) [Grunnskólar](/is/ibuar/daggaesla-og-skolar/grunnskolar-kopavogs) [Gæsluvellir](/is/ibuar/daggaesla-og-skolar/gaesluvellir) [Leikskólar](/is/ibuar/daggaesla-og-skolar/leikskolar) [Sumarnámskeið í Kópavogi](/is/ibuar/daggaesla-og-skolar/sumarnamskeid-i-kopavogi) [Stuðningur í leik- og grunnskólum](/is/ibuar/daggaesla-og-skolar/serfraedithjonusta-leik-og-grunnskola) [Tónlistarskólar](/is/ibuar/daggaesla-og-skolar/tonlistarskolar) [Vinnuskóli](/is/ibuar/daggaesla-og-skolar/vinnuskoli) [Íþróttir & útivist](/is/ibuar/ithrottir-utivist) [Velferð](/is/ibuar/velferd) [Eldri borgarar](/is/ibuar/velferd/aldradir) [Félagsleg úrræði](/is/ibuar/velferd/felagslegur-studningur) [Fólk með fötlun](/is/ibuar/velferd/fatlad-folk) [Börn og fjölskyldur](/is/ibuar/velferd/born-og-fjolskyldur) [Þjónusta](/is/ibuar/thonusta) [Skipulagsmál](/is/ibuar/skipulagsmal) [Byggingarmál](/is/ibuar/byggingarmal) [Samgöngur](/is/ibuar/samgongur) [Umhverfi](/is/ibuar/umhverfi) [Menning](/is/ibuar/menning) [Íbúaverkefni](/is/ibuar/ibuaverkefni) [Stjórnsýsla](/is/stjornsysla) [Bæjarstjórn](/is/stjornsysla/baejarstjorn) [Nefndir og ráð](/is/stjornsysla/rad-og-nefndir) [Fundargerðir](/is/stjornsysla/fundargerdir) [Stefnur, samþykktir og erindisbréf](/is/stjornsysla/stefnur-samthykktir-og-erindisbref) [Lög og reglugerðir](/is/stjornsysla/log-og-reglugerdir-1) [Útgáfa og tölfræði](/is/stjornsysla/utgafa-og-tolfraedi) [Stjórnkerfið](/is/stjornsysla/stjornkerfid) [Fyrir fjölmiðla](/is/stjornsysla/fyrir-fjolmidla) [Fyrir starfsmenn](/is/stjornsysla/fyrir-starfsmenn) [Mannlíf](/is/mannlif) [þjónustugátt](https://thjonustugatt.kopavogur.is/login.aspx?ReturnUrl=%2f) [Ábendingar](/is/abendingar-form)
Lista- og menningarráð mælir með því að haldið sé áfram með umsóknina þar sem hún er þegar langt komin, enda lítur það svo á að vinnan muni nýtast bæjarfélaginu hvort sem af verður eða ekki.
Verkefnið kom inn með mjög skömmum fyrirvara og því þarf að hafa hraðar hendur. Lista- og menningarráð gerir sér grein fyrir að þetta er viðamikið og kostnaðarsamt verkefni og því mikilvægt að nota næstu mánuði til að kanna með hvaða hætti hægt væri að fullfjármagna það.
Gestur á fundinum frá kl. 08:15-10:00 var María Kristín Gylfadóttir frá North Consulting.
Bókun um tillögu um að Kópavogur sæki um að vera „Menningarborg Evrópu“
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar í lista- og menningarráði vill leggja fram eftirfarandi bókun:
Samkvæmt erindisbréfi fulltrúa í lista- og menningarráði og bæjarmálasamþykkt er skýrt að ráðið fer með stefnumörkun í menningarmálum bæjarins. Það er ólíðandi og ámælisvert að ráðið sé sniðgengið með öllu þegar lagt er til við bæjarráð að bærinn sæki um að vera Menningarborg Evrópu og ekki einu sinni upplýst um málið. Samfylkingin setur sig ekki upp á móti hugmyndinni en hefði kosið lengri tímafrest og betri stjórnsýslu í ferlinu.
Virðingarfyllst,
Margrét Tryggvadóttir
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar