Reykjavíkurborg
Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 89
**Innkaupa- og framkvæmdaráð** [Ár 2022, fimmtudaginn 20. október 2022 var haldinn 89. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Pawel Bartoszek. Björn Gíslason, Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir og Hjálmar Sveinsson sátu fundinn í fundarsal. Theódór Kjartansson frá borgarlögmanni sat fundinn með rafrænum hætti. Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu sat fundinn í fundarsal ásamt Guðbjörgu Matthíasdóttur og var sú síðastnefnda jafnframt fundarritari. ] **Þetta gerðist:**
Samkeppnisútboð nr. 15411 - Rekstur víðnets Reykjavíkurborgar
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 17. október 2022, merkt ÞON22080054, samkeppnisútboð nr. 15411 - Rekstur víðnets Reykjavíkurborgar. Lagt er til við innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að eina tilboðinu sem barst og er frá Sensa hf. að fjárhæð kr. 558.592.500,- án vsk. en þar af eru valkvæð innkaup að beiðni kaupanda að fjárhæð kr. 243.652.500,-
Samþykkt
Loftur Steinar Loftsson situr undir þessum fundarlið ásamt Lenu Mjöll Markúsdóttur, Ólöfu Björgu Þórðardóttur og Björgvini Harra Bjarnasyni.
Fylgigögn
**Fundi slitið kl. 13:12**
Hjálmar Sveinsson Björn Gíslason
Pawel Bartoszek Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir