Mosfellsbær
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 61
==== 27. október 2022 kl. 08:45, ====
í Kjarna
== Fundinn sátu ==
- Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
== Fundargerð ritaði ==
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Arkarholt 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==202205642
Skipulagsnefnd samþykkti á 570. fundi sínum að grenndarkynna byggingaráform og byggingarleyfi fyrir útlitsbreytingum og breytta notkun bílskúrs að Arkarholti 4 í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Áformin voru kynnt á vef Mosfellsbæjar, mos.is, og með kynningarbréfi og gögnum sem send voru til nærliggjandi húsa, Arkarholts 2 og 6. Athugasemdafrestur var frá 01.09.2022 til og með 05.10.2022. Engar athugasemdir bárus.
Þar sem engar athugasemdir bárust við kynnt áform, með vísan í 4. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa, teljast áformin samþykkt og er byggingarfulltrúa heimilt að gefa út byggingarleyfi þegar að umsókn samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010, byggingarreglugerð nr. 112/2012 og kynntum gögnum.
== 2. Hamrabrekkur 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==202206006
Skipulagsnefnd samþykkti á 571. fundi sínum að grenndarkynna byggingaráform og byggingarleyfi fyrir nýju aukahúsi innan frítundalóðar að Hamrabrekkum 11 í samræmi við 1. og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Áformin voru kynnt á vef Mosfellsbæjar, mos.is, og með kynningarbréfi og gögnum sem send voru til nærliggjandi landeigenda, eigenda að Miðdalslandi L221372, Hamrabrekkum 5, 10, 12 og 13. Athugasemdafrestur var frá 06.09.2022 til og með 07.10.2022. Engar athugasemdir bárus.