Grindavíkurbær
Fræðslunefnd - Fundur 124
**124. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 6. október 2022 og hófst hann kl. 16:30.**
**Fundinn sátu: **Vilhjálmur Ragnar Kristjánsson, formaður, Eva Lind Matthíasdóttir, varaformaður, Eva Rún Barðadóttir, aðalmaður, Petra Rós Ólafsdóttir, varamaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður, Lóa Björg Björnsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, Inga Þórðardóttir, skólastjóri, Bylgja Kristín Héðinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, Eysteinn Þór Kristinsson, skólastjóri, Helga Rut Hallgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Þórkatla Albertsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Guðríður Sæmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi. **Fundargerð ritaði:** Sigurlína Jónasdóttir, daggæslufulltrúi.
**Dagskrá:** **1. Starfsáætlun tónlistarskóla 2022-2023 - 2209139**
Skólastjóri tónlistarskóla lagði fram starfsáætlun skólans fyrir skólaárið 2022-2023. Fræðslunefnd þakkar skólastjóra fyrir greinargóða yfirferð á starfsháttum tónlistarskólans.
Óskað var eftir breytingu á skóladagatali, færslu á afmælishátíð í október um eina viku. Fræðslunefnd samþykkir þá breytingu.
**2. Mat á starfi Tónlistarskóla - 2009209**
Fræðslunefnd frestar málinu til næsta fundar vegna vöntunar á gögnum.
**3. Verkefnið Kveikjum neistann - 2210003**
Svava Hjaltalín kynnti verkefnið Kveikjum neistann. Fræðslunefnd þakkar góða kynningu.
**4. Reglur um inntöku í leikskóla - 2208149**
Breyting á reglum um inntöku barna í leikskóla. Málið var áður á dagskrá á 122. fundi fræðslunefndar og þá var skólaþjónustu falið að fullvinna reglurnar og afgreiðslu frestað til októberfundar. Fræðslunefnd samþykkir breytingar á reglum um inntöku barna í leikskóla.
**5. Starfsáætlun Heilsuleikskólinn Krókir 2022-2023 - 2208143**
Starfsáætlun Heilsuleikskólans Króks 2022-2023 lögð fram. Fræðslunefnd samþykkir fram lagða starfsáætlun.
**6. Leikskólinn Laut - starfsáætlun 2022-2023 - 2208142**
Starfsáætlun leikskólans lögð fram. Fræðslunefnd samþykkir framlagða starfsáætlun.
**7. Breyting á skóladagatali Grunnskóla Grindavíkur 2022-2023 - 2210004**
Skólastjóri leggur fram tillögu um breytingu á skóladagatali. Fræðslunefnd samþykktir framlagða breytingu á skóladagatali.
**8. Starfsáætlun Skólasels skólaárið 2022-2023 - 2209144**
Skólastjóri leggur fram starfsáætlun Skólasels 2022-2023. Fræðslunefnd þakkar skólastjóra fyrir góða yfirferð á starfsáætlun Skólasels.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.
Fræðslunefnd / 27. október 2022
[Fundur 124](/v/26057)
Bæjarstjórn / 26. október 2022
[Fundur 532](/v/26054)
Bæjarráð / 19. október 2022
[Fundur 1625](/v/26039)
Hafnarstjórn / 13. október 2022
[Fundur 485](/v/26034)
Bæjarráð / 12. október 2022
[Fundur 1624](/v/26029)
Bæjarráð / 11. október 2022
[Fundur 1623](/v/26028)
Skipulagsnefnd / 11. október 2022
[Fundur 107](/v/26026)
Skipulagsnefnd / 6. október 2022
[Fundur 106](/v/26022)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. október 2022
[Fundur 119](/v/26021)
Bæjarstjórn / 3. október 2022
[Fundur 531](/v/26007)
Fræðslunefnd / 3. október 2022
[Fundur 123](/v/26006)
Bæjarráð / 3. október 2022
[Fundur 1622](/v/26005)
Bæjarráð / 14. september 2022
[Fundur 1621](/v/25980)
Hafnarstjórn / 13. september 2022
[Fundur 484](/v/25975)
Fræðslunefnd / 13. september 2022
[Fundur 122](/v/25974)
Frístunda- og menningarnefnd / 8. september 2022
[Fundur 118](/v/25963)
Bæjarráð / 7. september 2022
[Fundur1620](/v/25962)
Skipulagsnefnd / 6. september 2022
[Fundur 105](/v/25959)
Fræðslunefnd / 5. september 2022
[Fundur 121](/v/25957)
Bæjarstjórn / 31. ágúst 2022
[Fundur 530](/v/25951)
Frístunda- og menningarnefnd / 29. ágúst 2022
[Fundur 117](/v/25948)
Skipulagsnefnd / 29. ágúst 2022
[Fundur 104](/v/25946)
Bæjarráð / 24. ágúst 2022
[Fundur 1619](/v/25943)
Bæjarráð / 17. ágúst 2022
[Fundur 1618](/v/25935)
Bæjarráð / 27. júlí 2022
[Fundur 1617](/v/25915)