Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar - 612. fundur
= Byggðarráð Borgarbyggðar =
Dagskrá
=== 1.Viðauki við fjárhagsáætlun 2022 ===
2203010
Lagt fram undirbúningsskjal að viðauka VI við fjárhagsáætlun ársins 2022.
=== 2.Fjárhagsáætlun 2023 ===
2206062
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2023.
Drögum að fjárhagsáætlun er vísað til frekari vinnslu í byggðarráði og til fyrri umræðu á næsta fundi sveitarstjórnar.
=== 3.Fjárhagsáætlun fyrir leik-grunn og tónlistaskóla 2023 ===
2210111
Kynning á fjárhagsáætlun grunnskóla Borgarbyggðar vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2023. Til fundarins koma Helga Jensína Svavarsdóttir skólastjóri og Ingibjörg Adda Konráðsdóttir aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar og Júlía Guðjónsdóttir skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi.
Byggðarráð þakkar skólastjórum grunnskóla Borgarbyggðar fyrir upplýsandi kynningu á því góða starfi sem fram fer í skólunum. Hjá skólastjórum komu t.d. fram ábendingar um frekari uppbyggingu á tölvukosti, mikilvægi þess að betrumbæta skólalóðir ofl. Launakostnaður er langstærsti kostnaðarliður skólanna og ljóst að breytingar á kjarasamningum hafa yfirgnæfandi áhrif á rekstrarkostnað.
Eva Margrét Jónudóttir lauk fundarsetu að loknum þessum dagskrárlið.
Eva Margrét Jónudóttir lauk fundarsetu að loknum þessum dagskrárlið.
=== 4.Fjárhagsáætlun 2023 og gjaldskrá HeV ===
2210231
Framlögð fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands fyrir árið 2023 ásamt gjaldskrá.
Byggðarráð vísar fjárhagsáætlun HVE til frekari vinnu við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar en í áætlun HVE er miðað við að kostnaðarhlutdeild Borgarbyggðar verði um 4,5 m.kr. árið 2023 sem er í samræmi við framlögð drög að fjárhagsáætlun Borgarbyggðar.
=== 5.Áformuð hlutafjáraukning Ljósleiðarans ===
2210251
Hluthafafundur Ljósleiðarans hefur samþykkt tillögu um hlutafjáraukningu með fyrirvara um samþykki eigenda Orkuveitu Reykjavíkur. Þess er nú farið á leit við Borgarbyggð, sem eins eigenda að OR, að veita samþykki.
Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir tillögu um hlutafjáraukningu Ljósleiðarans og telur hana til þess fallna að auka virði eigin fjár Ljósleiðarans.
=== 6.Ágóðahlutagreiðsla 2022 ===
2210215
Framlagt bréf frá EBÍ um ágóðahlutagreiðslu fyrir árið 2022, kr. 795.500.-
Bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands framlagt. Útgreiðsla EBÍ árið 2022 er 50 m.kr. en hlutdeild Borgarbyggðar í Sameignarsjóði EBÍ er 1,591%.
=== 7.Íþróttahús - Frumhönnun ===
2110088
Afgreiðsla 609. fundar byggðarráðs Borgarbyggðar:
"Byggðarráð þakkar Heiðrúnu Ösp Hauksdóttur fyrir góða yfirferð yfir stöðu vinnu við uppbyggingu íþróttamannvirkja í Borgarnesi. Ákvörðun um stærri fjárfestingar sveitarfélagsins þarf að taka í tengslum við gerð á fjárfestingar- og fjárhagsáætlun. Málið verður tekið fyrir aftur á fundi byggðarráðs 6. október nk."
"Byggðarráð þakkar Heiðrúnu Ösp Hauksdóttur fyrir góða yfirferð yfir stöðu vinnu við uppbyggingu íþróttamannvirkja í Borgarnesi. Ákvörðun um stærri fjárfestingar sveitarfélagsins þarf að taka í tengslum við gerð á fjárfestingar- og fjárhagsáætlun. Málið verður tekið fyrir aftur á fundi byggðarráðs 6. október nk."
Byggðarráð vísar ákvörðun um næstu skref til frekari vinnu og umræðu í sveitarstjórn um fjárhagsáætlun. Í fjárfestingaráætlun fyrir næstu ár, sem nú er unnið að, mun fara fram faglegt mat á áhrifum af áhrifum áformaðra fjárfestinga á rekstur, sjóðstreymi og efnahag.
Eiríkur Ólafsson lauk fundarseta að loknum þessum dagskrárlið.
Eiríkur Ólafsson lauk fundarseta að loknum þessum dagskrárlið.
=== 8.Drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum - samráðsgátt ===
2210230
Boð frá innviðaráðuneytinu um samráð um mál nr. 202/2022 - Drög að breytingu á skipulagslögum.
Lagt fram til kynningar
=== 9.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - fundargerðir 2022 ===
2202151
Framlögð fundargerð 178. fundar stjórna Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var 20. október 2022, ásamt fylgigögnum.
Fundargerð fundar Heilbrigðiseftirlits Vesturlands lögð fram
=== 10.Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2022 ===
2202060
Framlögð fundargerð 914. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 12. október 2022
Fundargerð fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram
Fundi slitið - kl. 11:30.
Byggðarráð samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu sveitarstjórnar.