Suðurnesjabær
Framkvæmda- og skipulagsráð
= Framkvæmda- og skipulagsráð =
Dagskrá
Guðlaug Helga Sigurðardóttir boðaði forföll og sat Jóhann Ingi Kjærnested Þorvaldsson varamaður fundinn í hennar stað.
=== 1.Aðalskipulag Suðurnesjabæjar ===
2101022
Bréf Skipulagsstofnunar dags. 5. október 2022 lagt fram vegna athugunar stofnunarinnar á tillögu að Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034. Einnig minnisblað stofnunarinnar dags. 20. september 2022 vegna athugunar á stafrænum gögnum tillögunnar. Í bréfi Skipulagsstofnunar kemur fram að stofnunin hafi farið yfir framlögð gögn og geri ekki athugasemd við að skipulagstillagan verði auglýst skv. 31. grein skipulagslaga. Auk þess var lagt fram minnisblað Verkís dags. 24. október um uppfærslu á aðalskipulagsgögnum eftir athugun Skipulagsstofnunar og uppfærð aðalskipulagstillaga.
Lagt er til að bæjarstjórn samþykki að tillaga að aðalskipulagi og umhverfismatsskýrsla hennar verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
=== 2.Stafnesvegur 15 - Umsókn um byggingarleyfi ===
2210098
Suðurnesjabær sækir um byggingarleyfi vegna tímabundinnar einingabyggingar undir leikskóla að Stafnesvegi 15.
Samþykkt að fela byggingarfulltrúa útgáfu byggingarleyfis.
=== 3.Heiðargarðar - umsókn um lóð ===
2210056
ÓR Kranar sækja um lóðina Heiðargarða 20 undir byggingu atvinnuhúsnæðis.
Lóð sem sótt er um er ekki byggingarhæf og ekki á áætlun sveitarfélagsins á næsta ári. Skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda um aðrar mögulegar staðsetningar.
=== 4.Landhelgisgæsla Íslands - Fyrirspurn um framtíðar sprengjueyðingarsvæði vestan Keflavíkurflugvallar ===
2210100
Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir afstöðu Suðurnesjabæjar til fyrirhugaðrar staðsetningar sprengjueyðingar skv. meðfylgjandi gögnum.
Ráðið tekur jákvætt í erindið með fyrirvara um umhverismat framkvæmdarinnar og samþykki allra hagsmunaaðila sem erindið snertir.
Fundi slitið - kl. 18:00.