Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1626
**1626. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 1. nóvember 2022 og hófst hann kl. 15:00.** **Fundinn sátu:** Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. **Einnig sátu fundinn:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri. **Fundargerð ritaði:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. **Dagskrá:**
**1. Bílastæði, aðgengi og umferðaröryggismál við Hópsskóla - 2209014**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskárlið.
Tillögur að aðkomu að Hópsskóla lagðar fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
**2. Bílastæði við Krók - 2210072**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskárlið.
Lagt fram erindi frá húsfélaginu við Stamphólsveg 3, dags. 5. október sl. varðandi bifreiðar foreldrar barna á leikskólanum Króki sem lagt er á bílastæði blokkarinnar.
Bæjarráð beinir því til foreldra leikskólabarna á Króki að leggja ekki í einkastæði við Stamphólsveg 3. Jafnframt að húsfélagið við Stamphólsveg 3 merki sín stæði sérstaklega.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að svara erindinu.
**3. Undirskriftalisti vegna opnunartíma sundlaugar - 2210017**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og forstöðumanni
íþróttamannvirkja að móta tilllögur um breyttan opnunartíma sundlaugarinnar.
**4. Ósk um endurbætur á klefum og styrktaraðstöðu í íþróttamannvirkjum - 2206159**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málinu vísað í vinnu við fjárhagsáætlun vegna ársins 2023.
**5. Þjónustugjaldskrá á frístunda- og menningarsviði 2023 - 2209138**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga að þjónustugjaldskrá sviðsins.
**6. Umdæmisráð barnaverndar - Samningur - 2208150**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs, dags. 1. nóvember 2022 varðandi rekstur umdæmisráðs hjá landsbyggðinni.
Lagt er til að Grindavíkurbær gangi til samstarfs við Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga um rekstur umdæmisráðs í samstarfi við SSS.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.
**7. Víkurbraut 58 - Leyfisveitingar - 2210064**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi frá frá Vinnumálastofnun dags 20. okt. sl.
Með erindinu vill stofnunin upplýsa um fyrirhugaða leigu á húsnæði fyrir alþjóðlega vernd sem og að kanna hvort sveitarfélagið myndi vilja gera þjónustusamning er snýr að félagslegri þjónustu og stuðningi við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Bæjarráð gerir athugasemdir við það að Vinnumálastofnun leigi húsnæði í sveitarfélaginu til mótttöku flóttafólks án samráðs við bæjaryfirvöld.
Að mati bæjarráðs er húsnæðið óhæft til móttöku flóttafólks og því óskar bæjarráð eftir fundi með Vinnumálastofnun.
**8. Erindi til nefndasviðs Alþingis - 2210094**
Lagt fram erindi frá Grindavíkurbæ til fjárlaganefndar, dags. 27. okt. sl. vegna beiðni um stuðning við gestastofu og samfélagsmiðstöð í Kvikunni.
**9. Breyting á gildandi rekstrarleyfi veitingastaðar - Fishhouse ehf. - 2209089**
Lögð fram beiðni um umsögn vegna breytinga á rekstarleyfi Fishhouse ehf.
Fyrir liggja jákvæðar umsagnir HES, byggingafulltrúa og slökkviliðs.
Bæjarráð mælir með samþykkt leyfisins.
**10. Fjáreigendafélag - Ósk um styrk - 2210081**
Lögð fram beiðni um styrk frá Fjáreigendafélagi Grindavíkur, dags. 20. okt. sl. til áburðarkaupa til að græða upp gróðursnauð svæði í beitarhólfi í Krísuvíkurlandi.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 50.000 á árinu 2023 og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að uppfæra áætlunina til samræmis.
**11. Endurskoðun á skipuriti Grindavíkurbæjar - 2206049**
Bæjarfulltrúarnir Birgitta Hrund Káradóttir, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir og Gunnar Már Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðu málsins.
**12. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2208066**
Bæjarfulltrúarnir Birgitta Hrund Káradóttir, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir og Gunnar Már Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir lækkunartillögur sviðsstjóra og stöðu áætlunarinnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:50
Bæjarráð / 2. nóvember 2022
[Fundur 1626](/v/26066)
Fræðslunefnd / 27. október 2022
[Fundur 124](/v/26057)
Bæjarstjórn / 26. október 2022
[Fundur 532](/v/26054)
Bæjarráð / 19. október 2022
[Fundur 1625](/v/26039)
Hafnarstjórn / 13. október 2022
[Fundur 485](/v/26034)
Bæjarráð / 12. október 2022
[Fundur 1624](/v/26029)
Bæjarráð / 11. október 2022
[Fundur 1623](/v/26028)
Skipulagsnefnd / 11. október 2022
[Fundur 107](/v/26026)
Skipulagsnefnd / 6. október 2022
[Fundur 106](/v/26022)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. október 2022
[Fundur 119](/v/26021)
Bæjarstjórn / 3. október 2022
[Fundur 531](/v/26007)
Fræðslunefnd / 3. október 2022
[Fundur 123](/v/26006)
Bæjarráð / 3. október 2022
[Fundur 1622](/v/26005)
Bæjarráð / 14. september 2022
[Fundur 1621](/v/25980)
Hafnarstjórn / 13. september 2022
[Fundur 484](/v/25975)
Fræðslunefnd / 13. september 2022
[Fundur 122](/v/25974)
Frístunda- og menningarnefnd / 8. september 2022
[Fundur 118](/v/25963)
Bæjarráð / 7. september 2022
[Fundur1620](/v/25962)
Skipulagsnefnd / 6. september 2022
[Fundur 105](/v/25959)
Fræðslunefnd / 5. september 2022
[Fundur 121](/v/25957)
Bæjarstjórn / 31. ágúst 2022
[Fundur 530](/v/25951)
Frístunda- og menningarnefnd / 29. ágúst 2022
[Fundur 117](/v/25948)
Skipulagsnefnd / 29. ágúst 2022
[Fundur 104](/v/25946)
Bæjarráð / 24. ágúst 2022
[Fundur 1619](/v/25943)
Bæjarráð / 17. ágúst 2022
[Fundur 1618](/v/25935)