Hvalfjarðarsveit
Menningar- og markaðsnefnd 34. fundur
= Menningar- og markaðsnefnd =
Dagskrá
Ásdís Björg Björgvinsdóttir boðar forföll.
=== 1.17. júní 2023 - þjóðhátíðardagurinn ===
2210093
Skipulag á 17. júní 2023.
Kirkjukór Saurbæjarprestakalls og Tónlistarfélag Hvalfjarðarsveitar hefur tekið að sér að skipuleggja og halda utan um hátíðarhöldin á 17. júní á næsta ári.
=== 2.Beiðni um samstarf Hvalfjarðarsveitar og N4 sjónvarp um Að vestan ===
2210103
Erindi frá N4 - Að vestan.
Menningar- og markaðsnefnd fjallaði um erindið og samþykkir beiðni þáttanna Að vestan um að hækka styrkinn við N4. Styrkurinn verði því kr. 750.000.- frá árinu 2023 í stað kr. 500.000.- sem áður var og hefur verið óbreyttur frá árinu 2016.
Nefndin leggur til að sveitarstjórn samþykki beiðnina. Með tilliti til hækkana þá óskar nefndin einnig eftir að hækka þennan lið í fjárhagáætlunum fyrir árið 2023 og gera auk þess ráð fyrir hækkunum að heildarupphæð kr. 1.500.000 til að greiða fyrir kynningar- og markaðsmál sveitarfélagsins á samfélagsmiðlum.

=== 3.Merking sögu og merkisstaða ===
1911013
Farið yfir stöðuna á fjórða skiltinu.
Skilti fjögur er tilbúið og mun verða sett niður fljótlega. Undirbúningur að næsta skilti er í vinnslu.
=== 4.Viðburðir í Hvalfjarðarsveit ===
2210006
Farið yfir tillögur af viðburðum fyrir árið 2023.
Áframhaldandi umræður um þær hugmyndir sem fram hafa komið um viðburði á næsta ári.
=== 5.96.- 110. fundargerð menningar- og safnanefndar ===
2210102
Fundargerðir.
Fundargerðir framlagðar.
Fundi slitið - kl. 18:30.