Mosfellsbær
Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1555
==== 3. nóvember 2022 kl. 07:30, ====
2. hæð Helgafell
== Fundinn sátu ==
- Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) formaður
- Lovísa Jónsdóttir (LJó) varaformaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Anna Sigríður Guðnadóttir (ASG) aðalmaður
- Jana Katrín Knútsdóttir (JKK) aðalmaður
- Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
- Regína Ásvaldsdóttir (RÁ) bæjarstjóri
- Þóra Margrét Hjaltested embættismaður
== Fundargerð ritaði ==
Þóra Margrét Hjaltested lögmaður
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Samþætt þjónusta við börn ==202210022
Kynning á innleiðingu laga um samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barna.
Íris Dögg Hugrúnardóttir Marteinsdóttir, verkefnastjóri Farsældarhringsins, kynnti innleiðingu á lögum um samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barna.
== Gestir ==
- Sigurbjörg Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs
- Íris Dögg Hugrúnardóttir Marteinsdóttir, verkefnastjóri Farsældarhringsins
- Linda Udengard, framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs
== 2. Útboð - mötuneyti Kvíslarskóla og Varmárskóla ==202210549
Lagt er til að bæjarráð heimili fræðslu- og frístundasviði að hefja útboðsferli á aðkeyptum mat fyrir Kvíslarskóla og Varmárskóla frá janúar til júní 2023 og að fenginn verði sérhæfður aðili til að annast umsjón útboðs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila fræðslu- og frístundasviði að hefja undirbúning á útboðsferli á aðkeyptum mat fyrir Kvíslarskóla og Varmárskóla frá janúar til júní 2023 og að fenginn verði sérhæfður aðili til að annast umsjón útboðs, með fyrirvara um samþykki fjárhagsáætlunar 2023.
== Gestir ==
- Linda Udengard, framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs
== 3. Skipulag fjölskyldusviðs ==2020081082
Breyting á nafni fjölskyldusviðs í velferðarsvið kynnt.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fjölskyldusvið skuli bera nafnið velferðarsvið.
== 4. Heilsa og Hugur, lýðheilsuverkefni fyrir eldri borgara í Mosfellsbæ. ==202207290
Tillaga um að gengið verði til samninga við Félaga aldraðra í Mosfellsbæ um framkvæmd námskeiðsins Heilsa og hugur.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela framkvæmdastjóra velferðarsviðs að ganga til samninga við Félag aldraðra í Mosfellsbæ í samræmi við fyrirliggjandi tillögu.
== Gestir ==
- Sigurbjörg Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs
== 5. Tillaga B, C og S lista um styrki til lýðheilsuverkefna fyrir eldra fólk í Mosfellsbæ ==202210580
Tillaga fulltrúa B, C og S lista um að nýta ágóðahlutagreiðslu frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands til að styrkja verkefnin Karlar í skúrum og Heilsa og hugur.
Málinu frestað til næsta fundar vegna tímaskorts.
== 6. Tillaga D lista um greiðslu húsaleigu fyrir starfsemina Karlar í skúrum árið 2023 ==202210557
Tillaga D lista um að við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2023 verði gert ráð fyrir að Mosfellsbær greiði húsaleigu fyrir starfsemina Karlar í skúrum sem fram fer í húsnæði Skálatúns.
Málinu frestað til næsta fundar vegna tímaskorts.
== 7. Frumvarp til laga um útlendinga - beiðni um umsögn ==202210536
Frá nefndasviði Alþingis, frumvarp til laga um útlendinga, 382. mál. Umsagnarfrestur til 11. nóvember nk.
Lagt fram.
== 8. Tillaga til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara - beiðni um umsögn ==202210505
Frá nefndasviði Alþingis, tillaga til þingsályktunar um úttekt á tryggingarvernd í kjölfar náttúruhamfara, 231. mál. Umsagnarfrestur til 8. nóvember nk.
Lagt fram.