Fjarðabyggð
Hafnarstjórn - 287
**1. 2209172 - Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023**
|Lögð fram drög að gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023. Hafnarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá samkvæmt umræðum á fundi og vísar henni til bæjarstjórnar.|
**2. 2010159 - Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar**
|Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur áður samþykkt að senda tillöguna í auglýsingu.|
**3. 2204067 - Stækkun Mjóeyrarhafnar - annar áfangi, umhverfismat**
|Lagt fram til kynningar álit Skipulagsstofnunar vegna umhverfismatsskýrslu 2.áfanga Mjóeyrarhafnar|
**4. 2210158 - Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað**
|Lögð fram kostnaðargreining á gerð sjóvarnargarðs við Egilsbraut 22 og 26 í Neskaupstað. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram í samræmi við framlögð gögn og umræður á fundinum.|
**5. 2210189 - Óhirt og munaðarlaus veiðarfæri**
|Lagt fram til kynningar erindi frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi þar sem óskað er eftir því að fulltrúar hafna snúi sér til samtakanna ef munaðarlaus veiðarfæri eru á þeirra umráðasvæði og fái aðstoð við að ráða úr þeim vanda. Erindið er sent á allar aðildarhafnir Hafnasambands Íslands. |
**7. 2206091 - Hafnasambandsþing 2022**
|Lagðar fram til kynningar ályktanir sem samþykktar voru á Hafnasambandsþingi sem haldið var í Ólafsvík 27.-28.október síðastliðinn.|
**6. 2202086 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022**
|Lögð fram til kynningar fundargerð 446.fundar Hafnasambands Íslands|