Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1628
**1628. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 15. nóvember 2022 og hófst hann kl. 15:00.** **Fundinn sátu:** Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. **Einnig sátu fundinn:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðsog Fannar Jónasson, bæjarstjóri. **Fundargerð ritaði:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 3. mál: 2208150 Umdæmisráð barnaverndar - Samningur.
Samþykkt samhljóða.
**Dagskrá:**
**1. Fyrirspurn vegna svæðis við Hafnargötu - 2211026**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Kári Guðmundsson óskar eftir lóð við Hafnargötu undir 40 herbergja mótel eða gistiheimili á tveimur hæðum. Lóðin er í dag skilgreind á deiliskipulagi sem grænt svæði og er staðsett á móti Hafnargötu 8. Kári kom á fundarins og gerði grein fyrir hugmyndinni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
**2. Landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar 2023 - 2210098**
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessu dagskrárlið.
Tölvupóstur frá Unglingadeildinni Hafbjörgu, dags. 27.10. sl. lagt fram en þar er óskað eftir styrk vegna landsmóts unglingadeilda Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem að fram fer í Grindavík í júní 2023.
Bæjarráð samþykkir erindið.
**3. Umdæmisráð barnaverndar - Samningur - 2208150**
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samningi um rekstur umdæmisráðs barnaverndar fyrir sveitarfélögin á Suðurnesjum og Árborg, dags. 8.11.2022 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að veita sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs umboð til að vinna að framgangi málsins samkvæmt minnisblaðinu og í framhaldi undirrita samning um málið fyrir hönd Grindavíkurbæjar og leggja samninginn fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
**4. Þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga - 2211035**
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, daga. 7.11. sl. þar sem óskað er eftir þátttöku nokkurra sveitarfélaga við að móta aðferðafræði fyrir sveitarfélög til þess að bregðast við afleiðingum loftslagsbreytinga. Gert er ráð fyrir því að 4-5 sveitarfélög verði fyrir valinu.
**5. Félag heyrnarlausra óskar eftir stuðningi - 2211022**
Tölvupóstur frá félagi heyrnarlausra, dags. 4.11. sl. þar sem óskað er eftir styrk til þýðingar á nokkrum þekktum barnabókum yfir á íslenskt táknmál.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 50.000 kr. á árinu 2023.
**6. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2208066**
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Káradóttir, Birgitta R. Friðfinnsdóttir og Gunnar M. Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir rekstur og fjárfestingar áætlunarinnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00
Bæjarráð / 16. nóvember 2022
[Fundur 1628](/v/26093)
Bæjarráð / 10. nóvember 2022
[Fundur 1627](/v/26080)
Skipulagsnefnd / 8. nóvember 2022
[Fundur 108](/v/26076)
Frístunda- og menningarnefnd / 3. nóvember 2022
[Fundur 120](/v/26069)
Bæjarráð / 2. nóvember 2022
[Fundur 1626](/v/26066)
Fræðslunefnd / 27. október 2022
[Fundur 124](/v/26057)
Bæjarstjórn / 26. október 2022
[Fundur 532](/v/26054)
Bæjarráð / 19. október 2022
[Fundur 1625](/v/26039)
Hafnarstjórn / 13. október 2022
[Fundur 485](/v/26034)
Bæjarráð / 12. október 2022
[Fundur 1624](/v/26029)
Bæjarráð / 11. október 2022
[Fundur 1623](/v/26028)
Skipulagsnefnd / 11. október 2022
[Fundur 107](/v/26026)
Skipulagsnefnd / 6. október 2022
[Fundur 106](/v/26022)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. október 2022
[Fundur 119](/v/26021)
Bæjarstjórn / 3. október 2022
[Fundur 531](/v/26007)
Fræðslunefnd / 3. október 2022
[Fundur 123](/v/26006)
Bæjarráð / 3. október 2022
[Fundur 1622](/v/26005)
Bæjarráð / 14. september 2022
[Fundur 1621](/v/25980)
Hafnarstjórn / 13. september 2022
[Fundur 484](/v/25975)
Fræðslunefnd / 13. september 2022
[Fundur 122](/v/25974)
Frístunda- og menningarnefnd / 8. september 2022
[Fundur 118](/v/25963)
Bæjarráð / 7. september 2022
[Fundur1620](/v/25962)
Skipulagsnefnd / 6. september 2022
[Fundur 105](/v/25959)
Fræðslunefnd / 5. september 2022
[Fundur 121](/v/25957)
Bæjarstjórn / 31. ágúst 2022
[Fundur 530](/v/25951)
Frístunda- og menningarnefnd / 29. ágúst 2022
[Fundur 117](/v/25948)