Hveragerðisbær
Bæjarráð
= Bæjarráð =
Dagskrá
Sandra Sigurðardóttir, formaður, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
=== 1.Bréf frá Innviðaráðuneytinu frá 9. nóvember 2022 ===
2211046
Í bréfinu býður Innviðaráðuneytið kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufundar um hinsegin málefni. Samtökin ´78 sjá um fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks. Verkefnið er liður í aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022-2025.
Lagt fram til kynningar.
=== 2.Bréf frá Innviðaráðuneytinu frá 7. nóvember 2022 ===
2211047
Í bréfinu vekur Innviðaráðuneytið athygli á því í að áform um lagabreytingar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.
Bæjarráð tekur undir umsögn sambands Íslenskra sveitarfélaga sem komin er í samráðsgáttina.
=== 3.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá 26. október 2022 ===
2211054
Í bréfinu óskar Samband íslenskra sveitarfélaga eftir að sveitarfélagið verði áfram með í sameiginlegri þróun starfrænni umbreytingu árið 2023.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Hveragerðisbær verði áfram þátttakandi í stafrænu ráði sveitarfélaga.
=== 4.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá 7. nóvember 2022 ===
2211037
Í bréfinu segir frá Evrópsku nýtnivikunni sem haldin verður 19.- 27. nóvember nk. þar sem markmið vikunnar er að hvetja til aukinnar nýtni og draga úr myndun úrgangs.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð hvetur bæjarbúa til að taka þátt í verkefninu.
=== 5.Bréf frá Umhverfisstofnun frá 1. nóvember 2022 ===
2211029
Í bréfinu óskar Umhverfisstofnun eftir að sveitarfélög tilnefni fulltrúa sinn, og annan til vara, sem og fulltrúa náttúruverndar- eða umhverfisnefndar sveitarfélags ef slík nefnd starfar á svæðinu, í vatnasvæðanefnd með tilvísan í 6. gr. reglugerðar nr. 935/2011 um stjórn vatnamála.
Lagt er til að formaður Umhverfisnefndar verði fulltrúi Hveragerðisbæjar og varaformaður nefndarinnar til vara til móts við fulltrúa Ölfus.
=== 6.Bréf frá Stígamótum frá 31. október 2022 ===
2211009
Í bréfinu óska Stígamót eftir fjárstuðningi frá Hveragerðisbæ vegna ársins 2023.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Stígamót um kr. 120.000.- líkt og undanfarin ár.
=== 7.Bréf frá foreldrafélagi leikskólanna í Hveragerði ódagsett. ===
2211040
Í bréfinu óskar foreldrafélag leikskólanna í Hveragerði eftir auka styrk fyrir árið 2023 til að halda sumarhátíð næsta sumar.
Bæjarráð samþykkir að styrkur til foreldrafélags leikskólanna árið 2023 verði aukinn úr 400.000.- í 500.000.-
=== 8.Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags ===
2211038
Óskað er eftir að nemandi með lögheimili í Hveragerði fái að stunda nám í skóla utan Hveragerðis skólaárin 2022-2025
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir skólaárið 2022-2023.
=== 9.Leikskólinn Óskaland - lóðaframkvæmdir - verkfundargerð frá 4. nóvember 2022 ===
2211035
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
=== 10.Verkfundargerð - Hólmabrún frá 8. nóvember 2022 ===
2211036
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
=== 11.Fundargerð NOS frá 24. október 2022 ===
2211041
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
=== 12.Fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurlands 11. nóvember 2022 ===
2211042
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
=== 13.Ársskýrsla Héraðsskjalasafns Árnesinga 2021 og minnisblað um rafræna langtímavarðveislu ===
2211053
Ársskýrsla og minnisblað lagt fram til kynningar.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 08:38.
Getum við bætt efni síðunnar?