Suðurnesjabær
Fræðsluráð
= Fræðsluráð =
Dagskrá
Áheyrnarfulltrúar: Sigríður Ólöf Sæmundsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Sólborg, Hafrún Ægisdóttir leikskólaskennari boðaði forföll, Anna Marta Þorsteinsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Eva Sveinsdóttir, skólastjóri Gerðaskóla, Kolbrún Ósk Ásgerisdóttir kennari boðaði forföll og Jóhanna Pálsdóttir foreldri úr grunnskóla.
=== 1.Málþroski barna ===
2211061
Hjördís Hafsteinsdóttir talmeinafræðingur Suðurnesjabæjar kynnti starfið sitt í leik- og grunnskólum bæjarins.
=== 2.Umbótaáætlun ytra mats Gefnarborgar ===
2201027
Ingibjörg á Gefnarborg forfallaðist og kemur á næsta fund fræðsluráðs í desember.
=== 3.Starfsáætlun Sandgerðisskóla ===
2110049
Starfsáætlun Sandgerðisskóla fyrir skólaárið 2022-2023 lögð fram. Hún verður aðgengileg á heimasíðu skólans. Skólastjóri kynnti áætlunina.
=== 4.Starfsáætlun Gerðaskóla ===
2110047
Starfsáætlun fyrir skólaárið 2022-2023 lögð fram og verður aðgengileg á heimasíðu skólans. Skólastjóri kynnti áætlunina.
=== 5.Frístundastyrkir 2022 ===
2201059
Formaður fræðsluráðs kynnti frístundastyrk Suðurnesjabæjar.
=== 6.Umönnunarbætur ===
1806154
Formaður fræðsluráðs kynnti umönnunarbætur Suðurnesjabæjar.
=== 7.Dagforeldrar ===
2001112
Formaður fræðsluráðs kynnti niðurgreiðslur fyrir daggæslu í Suðurnesjabæ.
=== 8.Ferðastyrkir námsmanna ===
2008046
Formaður fræðsluráðs kynnti ferðastyrk til námsmanna.
Fundi slitið - kl. 09:30.