Fjarðabyggð
Félagsmálanefnd - 159
**1. 2209228 - Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar**
|Formaður félagsmálanefndar kynnti erindi frá UNICEF á Íslandi um tækifæri barna til áhrifa og ungmennaráð. Félagsmálanefnd tekur undir erindið og minnir á mikilvægi þess að leita umsagnar ungmennaráðs. |
[Erindi_frá_UNICEF_til_Fjarðabyggðar.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=2VAzjBLt1UGtDxkyggZKLA&meetingid=1eh3QwhlfkyPDk2EGdnkrA1
&filename=Erindi_frá_UNICEF_til_Fjarðabyggðar.pdf)
**2. 2210044 - Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2023**
|Umsókn um rekstarstyrk fyrir árið 2023 fyrir Kvennaathvarfið. Félagsmálanefnd samþykkir að styrkja Kvennaathvarfið um 500 þúsund krónur árið 2023. |
[Bréf frá Kvenna Athvarfi um styrk.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=PXRk2GJTf0qn1Qd8FViNKQ&meetingid=1eh3QwhlfkyPDk2EGdnkrA1
&filename=Bréf frá Kvenna Athvarfi um styrk.pdf)
[Upplýsingar um þjónustu.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=y_Gqgll_UyDcebVV9skig&meetingid=1eh3QwhlfkyPDk2EGdnkrA1
&filename=Upplýsingar um þjónustu.pdf)
**3. 2210164 - Umsókn um styrk vegna barnabókaefnis á táknmáli**
|Umsókn um styrk vegna barnabókaefnis á táknmáli. Félagsmálanefnd þakkar fyrir erindið en telur sig ekki geta orðið við þessari styrkbeiðni.|
**4. 2210198 - Til umsagnar 382. mál frá nefndasviði Alþingis um útlendinga**
|Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um útlendinga (alþjóðleg vernd), 382. mál.|
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 11. nóvember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
[Umsögn um frumvarp til laga um útlendinga 382. mál.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=Vu3FbLq88UaDSvQysIsQPA&meetingid=1eh3QwhlfkyPDk2EGdnkrA1
&filename=Umsögn um frumvarp til laga um útlendinga 382. mál.pdf)
**5. 2211045 - Styrkbeiðni vegna Stígamóta 2023**
|Styrkbeiðni vegna Stígamóta 2023. Félagsmálanefnd samþykkir að styrkja samtökin Stígamót um 500.000 krónur árið 2023.|
**6. 2211026 - Samningur við Brák-Bríet um félagslegt húsnæði**
|Sviðsstjóri fjölskyldusviðs upplýsir nefndina um samningsdrög Fjarðabyggðar og Brákar-Bríetar um félagslegt leiguhúsnæði. |
**7. 2211055 - Samstarfssamningur Fjarðabyggðar og Samtakanna 78**
|Félagsmálanefnd telur Samtökin´78 gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í fræðslustarfi fyrir samfélagið í heild. Það er mikilvægt að sveitarfélög séu leiðandi í jafnréttismálum og er hinsegin fræðsla stór hluti af þeim. Nauðsynlegt er að sporna við óæskilegri orðræðu og fordómum sem eiga sér stað í auknum mæli í samfélaginu. Félagsmálanefnd fagnar fjölbreytileikanum í Fjarðabyggð og vill sýna stuðning sinn í verki. Með þriggja ára þjónustusamningi við Samtökin´78 verður fræðslan markvissari og hægt er að skipuleggja vinnuna fram í tímann. Við viljum að virðing og mannréttindi séu höfð að leiðarljósi í okkar samfélagi og því teljum við mikilvægt að koma á slíku samstarfi. |
[Samstarfssamningur Fjarðabyggðar og Samtakanna 78.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=6O3C7HiwtEGNOxGCZDXXw1&meetingid=1eh3QwhlfkyPDk2EGdnkrA1
&filename=Samstarfssamningur Fjarðabyggðar og Samtakanna 78.pdf)