Seltjarnarnesbær
133. fundur skipulags- og umferðarnefndar
= Fundartími Skipulags- og umferðarnefnd 2022 =
| 20. janúar
|
3. febrúar
3. mars
7. apríl
5. maí
Stjórnsýsla
Hér er að finna fundargerðir skipulags- og mannvirkjanefndar frá þessu ári, raðað í tímaröð. Fundargerðir annarra ára er raðað eftir ártölum í hægri dálki: "Leitað eftir árum"
Skipulags- og umferðarnefnd
133. fundur skipulags- og umferðarnefndar Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness, mánudaginn 21. nóvember, 2022 kl. 08:15 Nefndarmenn Svana Helen Björnsdóttir , formaður Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, varaformaður Örn Viðar Skúlason, aðalmaður Stefán Bergmann, varamaður Bjarni Torfi Álfþórsson Starfsmaður: Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri Fundargerð ritaði: Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs. Dagskrá: 1. 2022110034 - Breyting á deiliskipulagi - Steinavör 8 og 12 Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Steinavara 8 og 12, dagsett 28. október 2022, í fyrirspurninni felst ósk um að heimilað verði að reisa raðhús með 5 íbúðum í stað einbýlishúsa. Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. 2. 2022110111 - Breyting á deiliskipulagi - Miðbraut 8 Lögð fram umsókn Sigrúnar Ingu Hrólfsdóttur, dagsett 9. nóvember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Bakkahverfis vegna lóðarinnar Miðbraut 8. Í umsókninni felst ósk um að byggja á lóðinni bílskúr/vinnustofu allt að 82m2. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 fyrir íbúum Miðbrautar 6 og 10 og Unnarbrautar 26 og 28. Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn. 3. 2022110081 - Fyrirspurn vegna Vallarbraut 3 - bílskúr Lögð fram fyrirspurn Elínar Jórunnar Baldvinsdóttur, dagsett 9. nóvember 2022, í fyrirspurninni felst ósk um að auka nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,4 í 0,44 og stækka byggingarreit. Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. 4. 2022090220 - Deiliskipulag Stranda - breyting vegna Víkurströnd 1-1A Lagður fram tölvupóstur frá Árna Á. Árnasyni, dagsettur 24. október 2022, varðandi eignarhald Seltjarnarnesbæjar á landi við Víkurströnd 1-1A. Lagt fram til kynningar. 5. 2022110074 - Kæra 126/2022 - Breyting á deiliskipulagi Valhúsahæðar og aðliggjandi útivistarsvæðis við Skólabraut 10 Lögð fram til kynningar kæra 126/2022 til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna breytinga á deiliskipulagi Valhúsahæðar og aðliggjandi útivistarsvæðis. Lagt fram til kynningar. 6. 2022090218 - Grænn stígur ofan höfuðborgarsvæðisins Lagt fram bréf stjórnar Skógræktarfélags Íslands, dagsett 21. september 2022, varðandi gerð græna stígsins ofan höfuðborgarsvæðisins. Lagt fram til kynningar 7. 2022110065 - Safnatröð 5 Lögð fram byggingarleyfisumsókn Menningar- og viðskiptaráðuneytisins, dagsett 3. nóvember 2022, þar sem sótt er um leyfi til að fullklára byggingu hússins undir náttúruminjasafn. Frestað, beðið er umsagna Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðiseftirlits og Vinnueftirlits. 8. 2022110099 - Umsókn um stöðuleyfi Lögð fram stöðuleyfisumsókn Bárðar Guðlaugssonar, dagsett 11. nóvember 2022. Skipulags- og umferðarnefnd hafnar erindinu með vísan í fyrri bókun nefndarinnar á 130. fundi, 11. október 2022, ekki hafa komið fram ný gögn í málinu sem breyta fyrri afgreiðslu. Fundi slitið 09:23
Þetta vefsvæði
[byggir á Eplica](http://www.eplica.is/)