Reykjavíkurborg
Velferðarráð - Fundur nr. 439
**Velferðarráð**
Ár 2022, föstudagur 25. nóvember var haldinn 439. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 9:00 í Bergi, Gerðubergi 3-5 og var jafnframt streymt á vefnum. Á fundinn mættu: Heiða Björg Hilmisdóttir, Helga Þórðardóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Rannveig Ernudóttir, Sandra Hlíf Ocares, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Þorvaldur Daníelsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Agnes Sif Andrésdóttir, Anna Sigrún Baldursdóttir, Bjarki Þór Baldvinsson, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Rannveig Einarsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
**Þetta gerðist:**
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs, setur fundinn og heldur stutt ávarp.
Anna Sigrún Baldursdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu öldrunarmála, heldur erindi: Öldrun er framtíðin. VEL22110232.
Guðbjörg Theresía Einarsdóttir, verkefnastjóri á skrifstofu öldrunarmála, heldur kynningu á samþættri heimaþjónustu. VEL22110234.
Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir, teymisstjóri árangurs- og gæðamats á velferðarsviði, heldur kynningu á niðurstöðum könnunar meðal notenda heimahjúkrunar. VEL22110236.
Theodór Blöndal, meðlimur í Korpúlfum, heldur kynningu á starfi Korpúlfa, félagsstarfi aldraðra í Grafarvogi. VEL22110238.
Fram fara umræður og tekið við spurningum úr sal og af vefnum.
**Fundi slitið kl. 10:15**
Heiða Björg Hilmisdóttir (sign)
Sanna Magdalena Mörtudóttir (sign) Magnea Gná Jóhannsdóttir (sign)
Þorvaldur Daníelsson (sign) Helga Þórðardóttir (sign)
Rannveig Ernudóttir (sign) Sandra Hlíf Ocares (sign)