Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1608
06.04.2022 - Slóð
**1608. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 5. apríl 2022 og hófst hann kl. 16:00.**
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Páll Valur Björnsson, áheyrnarfulltrúi. Helga Dís Jakobsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sævar Þór Birgisson, varamaður.
Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
**1. Gamla kirkjan í Grindavík - 2203127**
Kristín Matthíasdóttir og Kristinn S. Jórmundsson, Vesturbraut 2, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og kynntu þau hugmyndir sínar um aukna starfsemi í gömlu kirkjunni með hugsanleg kaup í huga.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.
**2. Umsókn um byggingarleyfi - Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur) - 2203138**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Kynntar fyrirhugaðar framkvæmdir við að klæða grunnskólann við Ásabraut.
**3. Ársuppgjör 2021 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2202053**
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2020 er lagður fram.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn og vísar honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi 18. gr. og 61. gr. laga nr. 138/2011.
**4. Breyting á barnaverndarlögum - Barnaverndarþjónusta - 2111020**
Ákveðið hefur verið að fresta gildistöku ákvæða í barnaverndarlögum sem fjalla um barnaverndarþjónustu og umdæmisráð.
**5. Viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka - 2203135**
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 25. mars sl. varðandi viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka.
**6. Forkaupsréttur vegna sölu á fiskiskipinu Hrafni GK-111, sknr. 1401 - 2203142**
Þorbirni hf. hefur borist kauptilboð í skipið og er Grindavíkurbæ boðinn forkaupsréttur, sbr, 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.
Bæjarráð / 24. júní 2022
[Fundur 1613](/v/25876)
Skipulagsnefnd / 24. júní 2022
[Fundur 102](/v/25874)
Bæjarráð / 15. júní 2022
[Fundur 1612](/v/25865)
Bæjarstjórn / 8. júní 2022
[Fundur 529](/v/25839)
Bæjarráð / 25. maí 2022
[Fundur 1611](/v/25805)
Fræðslunefnd / 24. maí 2022
[Fundur 119](/v/25804)
Bæjarstjórn / 11. maí 2022
[Fundur 528](/v/25760)
Frístunda- og menningarnefnd / 11. maí 2022
[Fundur 115](/v/25756)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25736)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25735)
Bæjarráð / 4. maí 2022
[Fundur 1610](/v/25730)
Skipulagsnefnd / 3. maí 2022
[Fundur 101](/v/25727)
Hafnarstjórn / 2. maí 2022
[Fundur 482](/v/25716)
Bæjarstjórn / 27. apríl 2022
[Fundur 527](/v/25704)
Skipulagsnefnd / 20. apríl 2022
[Fundur 100](/v/25688)
Bæjarráð / 20. apríl 2022
[Fundur 1609](/v/25687)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 118](/v/25672)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 117](/v/25671)
Bæjarráð / 6. apríl 2022
[Fundur 1608](/v/25656)
Bæjarráð / 31. mars 2022
[Fundur 1605](/v/25642)
Bæjarstjórn / 30. mars 2022
[Fundur 526](/v/25639)
Bæjarráð / 23. mars 2022
[Fundur 1607](/v/25620)