Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1630
**1630. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 6. desember 2022 og hófst hann kl. 15:00.** **Fundinn sátu:** Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi.
**Einnig sátu fundinn:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
**Fundargerð ritaði:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 19. mál: 2212018 Stafræn smiðja á Suðurnesjum.
Samþykkt samhljóða.
**Dagskrá:**
**1. Ræktunarstöð fyrir skeldýralirfur - 2211060**
Júlíus B. Kristinsson mætti á fundinn og kynnti hugmyndir fyrirtækisins Silfurgen ehf.
**2. Greiðslur nefndarlauna - 2211103**
Launafulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um að nefndarlaun verði greidd mánaðarlega.
Bæjarráð samþykkir erindið og að haldið verði utanum öll nefndarlaun í Vinnustund og upphafsdagsetning verður 01.01.2023.
**3. Kjarasamningsumboð - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2211068**
Launafulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga að samkomulagi um kjarasamningsumboð til Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Grindavíkurbæjar og samkomulag um sameiginlega ábyrgð vegna samningaviðræðna um gerð kjarasamninga.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlögð skjöl.
**4. Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjöld - 2212002**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að breyttri gjaldskrá byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjalda Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til samþykktar í bæjarstjórn.
**5. Gjaldskrá og samþykkt fráveitu Grindavíkurbæjar - 2212001**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að breyttri gjaldskrá fráveitu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til samþykktar í bæjarstjórn.
**6. Breyting á gjaldskrá um sorpgjöld og sorphirðu í Grindavík - 2023 - 2211054**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að breyttri gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til samþykktar í bæjarstjórn.
**7. Samþykkt um gatnagerðargjöld - tillaga að breytingu des 2022 - 2212004**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að breyttri samþykkt um gatnagerðargjöld Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar samþykktinni til samþykktar í bæjarstjórn.
**8. Reglur um lóðarúthlutanir - tillaga að breytingu des 2022 - 2212003**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að breyttum reglum um lóðarúthlutun í Grindavíkurbæ lögð fram.
Bæjarráð vísar samþykktinni til samþykktar í bæjarstjórn.
**9. Gjaldskrá vatnsveitu Grindavíkurbæjar - 2211075**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að breyttri gjaldskrá vatnsveitu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til samþykktar í bæjarstjórn.
**10. Jarðvinna á lóðamörkum Hafnargötu 24 og 26. - 2205001**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá Eldhamri vegna framkvæmda á lóðarmörkum við Hafnargötu 24 og 26 lagt fram.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum.
**11. Fjarskiptamastur MÍLU í Grindavíkurbæ - 2211096**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð frestar málinu þar sem það er til umfjöllunar á næsta fundi skipulagsnefndar.
**12. Félagsaðstaða eldri borgara - útboð - 2211105**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málið lagt fram í kjölfar opnunar á tilboðum í félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð.
Tilboð Grindarinnar ehf. hefur verið valið.
**13. Uppbygging lóðar við Hafnargötu - 2212007**
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tími vegna auglýsingar um svæði við Hafnargötu rann út kl. 12 þriðjudaginn 6. desember. Tillögur bárust frá þremur áhugasömum aðilum.
Bæjarráð óskar eftir nánari upplýsingum frá þessum aðilum á næsta fundi bæjarráðs sem er 20. desember.
**14. Skipulagsgreining Grindavíkurhöfn - 2211029**
Hafnarstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram kostnaðar- og tímamat frá Eflu, dags. 01.12.2022 um skipulagsgreiningu fyrir Grindavíkurhöfn í nútíð og framtíð.
Bæjarráð samþykkir verkefnið.
**15. Kalka sorpeyðing - Söfnun úrgangs og söfnunarílát - 2211092**
Lagt fram erindi frá Kölku, dags. 22.11.2022 þar sem óskað er eftir samþykki bæjarins að Kalka sjái um söfnun úrgagns frá heimilum vegna fjögurra úrgangsflokka og sjái líka um fjármögnun söfnunarílátanna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja erindið.
**16. Fisktækniskóli Íslands - Útskrift og afmæli - 2211100**
Erindi lagt fram frá skólastjóra fisktækniskólans, dags. 29.11.2022 vegna útskriftar 15. des. nk á 10 ára afmæli skólans með hvatningu um gjöf til skólans frá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð samþykkir 1.000.000 kr. til Fisktækniskólans.
**17. Fasteignagjöld - innheimta - 2211102**
Lagt fram yfirlit yfir greiðsluhraða fasteignagjalda vegna ársins 2021.
**18. Álagningareglur fasteignagjalda 2023 - 2206011**
Lögð fram tillaga um að fjölga gjalddögum fasteignagjalda úr 10 í 11.
Bæjarráð samþykkir að fjöldi gjalddaga á árinu 2023 verði 10.
**19. Stafræn smiðja á Suðurnesjum - 2212018**
Undirbúningshópur stafrænnar smiðju, skipaður af Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, leitar eftir fjárhagsaðstoð við að stofna og reka Fab Lab stafræna smiðjur á Suðurnesjum.
Bæjarráð mun styðja við verkefnið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:25.
Skipulagsnefnd / 7. desember 2022
[Fundur 110](/v/26136)
Bæjarráð / 7. desember 2022
[Fundur 1630](/v/26135)
Bæjarstjórn / 1. desember 2022
[Fundur 533](/v/26129)
Bæjarráð / 23. nóvember 2022
[Fundur 1629](/v/26114)
Skipulagsnefnd / 22. nóvember 2022
[Fundur 109](/v/26113)
Bæjarráð / 16. nóvember 2022
[Fundur 1628](/v/26093)
Bæjarráð / 10. nóvember 2022
[Fundur 1627](/v/26080)
Skipulagsnefnd / 8. nóvember 2022
[Fundur 108](/v/26076)
Frístunda- og menningarnefnd / 3. nóvember 2022
[Fundur 120](/v/26069)
Bæjarráð / 2. nóvember 2022
[Fundur 1626](/v/26066)
Fræðslunefnd / 27. október 2022
[Fundur 124](/v/26057)
Bæjarstjórn / 26. október 2022
[Fundur 532](/v/26054)
Bæjarráð / 19. október 2022
[Fundur 1625](/v/26039)
Hafnarstjórn / 13. október 2022
[Fundur 485](/v/26034)
Bæjarráð / 12. október 2022
[Fundur 1624](/v/26029)
Bæjarráð / 11. október 2022
[Fundur 1623](/v/26028)
Skipulagsnefnd / 11. október 2022
[Fundur 107](/v/26026)
Skipulagsnefnd / 6. október 2022
[Fundur 106](/v/26022)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. október 2022
[Fundur 119](/v/26021)
Bæjarstjórn / 3. október 2022
[Fundur 531](/v/26007)
Fræðslunefnd / 3. október 2022
[Fundur 123](/v/26006)
Bæjarráð / 3. október 2022
[Fundur 1622](/v/26005)
Bæjarráð / 14. september 2022
[Fundur 1621](/v/25980)
Hafnarstjórn / 13. september 2022
[Fundur 484](/v/25975)
Fræðslunefnd / 13. september 2022
[Fundur 122](/v/25974)
Frístunda- og menningarnefnd / 8. september 2022
[Fundur 118](/v/25963)
Bæjarráð / 7. september 2022
[Fundur1620](/v/25962)