Grindavíkurbær
Skipulagsnefnd - Fundur 110
**110. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 5. desember 2022 og hófst hann kl. 16:15.**
**Fundinn sátu:** Lilja Ósk Sigmarsdóttir, formaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, varaformaður, Hrannar Jón Emilsson, aðalmaður, Steinberg Reynisson, aðalmaður, Unnar Á. Magnússon, aðalmaður, Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs. **Fundargerð ritaði:** Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs. **Dagskrá:** **1. Umferðaröryggismál í Grindavík - 2103082**
Undir dagskrárliðnum sátu þau Bergsteinn Ólafsson og Eydís Ármannsdóttir umferðaröryggisfulltrúar skipulagsnefnar.
Drög að stefnu Grindavíkurbæjar í umferðaröryggismálum lögð fram eftir umsagnir frá Lögreglunni á Suðurnesjum, Samgöngustofu og Vegagerðinni.
Eftirfarandi bætt við drögin:
- Hraði á Ránargötu neðan Mánagötu verður 50 km/klst
- Þungatakmarkanir verði settar á Víkurbraut neðan Sunnubrautar.
Skipulagsnefnd leggur til að stefnan verði kynnt íbúum í upphafi árs 2023. Stefnt er að því að hún taki gildi vorið/sumarið 2023.
Skipulagsnefnd vísar erindu til bæjarráðs til umfjöllunar.
**2. Breyting á deiliskipulagi á Stað - 2212006**
Samherji fiskeldi sækir um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Stað vestan Grindavíkur. Sótt er um stækkun á byggingarreit um 263 m2. Samþykki landeiganda fyrir deiliskipulagsbreytingunni liggur fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir að um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Stað sé að ræða. Í ljósi þess að samþykki landeiganda liggur fyrir fellur skipulagsnefnd frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki aðra en sveitarfélagið og umsækjanda ( sbr. 3 mgr. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010).
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna. Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagsfulltrúa er falið að afgreiða skipulagsbreytinguna til Skipulagsstofnunar í samræmi við skipulagslög.
**3. Breyting á deiliskipulagi - Spóahlíð 3 - 2212005**
Smiðshöggið ehf. óskar eftir breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 3. Sótt er um að fá að breytta byggingareit fyrir 12 íbúðir. Jafnframt breytingar á innkeyrslu og tilfærslu á lóðarmörkum án breytinga á lóðarstærð.
Skipulagsnefnd samþykkir að farið verði með framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 3 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna skipulagstillöguna fyrir lóðarhöfum við Spóahlíð 1, 5 og 9.
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna breytingu á grunngögnum deiliskipulags og lóðarblöðum, kostnað sem verður til við færslu á innviðum á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar o.s.frv.
**4. Seljabót 2a - óveruleg deiliskipulagsbreyting - 2211106**
Skipulagsfulltrúi óskar eftir að gerð verði breyting á deiliskipulagi lóðarinnar við Seljabót 2a. Óskað eftir að útbúin verði byggingarreitur undir dælustöð fyrir fráveitukerfi.
Skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í deiliskipulagsbreytinguna og óskar umsagnar frá hafnarstjórn um tillöguna áður en áfram er haldið.
**5. Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjöld - 2212002**
Drög að breyttri gjaldskrá byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjalda Grindavíkurbæjar lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir drögin og vísar þeim til umfjöllunar í bæjarráði og afgreiðslu í bæjarstjórn.
**6. Reglur um lóðarúthlutanir - tillaga að breytingu des 2022 - 2212003**
Drög að breytingum á reglum um lóðarúthlutanir Grindavíkurbæjar lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir drögin og vísar þeim til umfjöllunar í bæjarráði og afgreiðslu í bæjarstjórn.
**7. Aðalskipulagsbreyting í Reykjanesbæ Vinnslutillaga ósk um umsögn - 2211073**
Reykjanesbær óskar umsagnar við vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar á Reykjanesi. Breytingin varða stækkun á iðnaðarsvæði i5 og aukning á byggingarmagni. Gert er ráð fyrir uppbyggingu fiskeldis á svæðinu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við skipulagstillöguna og vísar afgreiðslu málsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45.
Skipulagsnefnd / 7. desember 2022
[Fundur 110](/v/26136)
Bæjarráð / 7. desember 2022
[Fundur 1630](/v/26135)
Bæjarstjórn / 1. desember 2022
[Fundur 533](/v/26129)
Bæjarráð / 23. nóvember 2022
[Fundur 1629](/v/26114)
Skipulagsnefnd / 22. nóvember 2022
[Fundur 109](/v/26113)
Bæjarráð / 16. nóvember 2022
[Fundur 1628](/v/26093)
Bæjarráð / 10. nóvember 2022
[Fundur 1627](/v/26080)
Skipulagsnefnd / 8. nóvember 2022
[Fundur 108](/v/26076)
Frístunda- og menningarnefnd / 3. nóvember 2022
[Fundur 120](/v/26069)
Bæjarráð / 2. nóvember 2022
[Fundur 1626](/v/26066)
Fræðslunefnd / 27. október 2022
[Fundur 124](/v/26057)
Bæjarstjórn / 26. október 2022
[Fundur 532](/v/26054)
Bæjarráð / 19. október 2022
[Fundur 1625](/v/26039)
Hafnarstjórn / 13. október 2022
[Fundur 485](/v/26034)
Bæjarráð / 12. október 2022
[Fundur 1624](/v/26029)
Bæjarráð / 11. október 2022
[Fundur 1623](/v/26028)
Skipulagsnefnd / 11. október 2022
[Fundur 107](/v/26026)
Skipulagsnefnd / 6. október 2022
[Fundur 106](/v/26022)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. október 2022
[Fundur 119](/v/26021)
Bæjarstjórn / 3. október 2022
[Fundur 531](/v/26007)
Fræðslunefnd / 3. október 2022
[Fundur 123](/v/26006)
Bæjarráð / 3. október 2022
[Fundur 1622](/v/26005)
Bæjarráð / 14. september 2022
[Fundur 1621](/v/25980)
Hafnarstjórn / 13. september 2022
[Fundur 484](/v/25975)
Fræðslunefnd / 13. september 2022
[Fundur 122](/v/25974)
Frístunda- og menningarnefnd / 8. september 2022
[Fundur 118](/v/25963)
Bæjarráð / 7. september 2022
[Fundur1620](/v/25962)