Hvalfjarðarsveit
Menningar- og markaðsnefnd 35. fundur
= Menningar- og markaðsnefnd =
Dagskrá
=== 1.Merking sögu og merkisstaða ===
1911013
Vinna við fimmta skiltið.
Áframhaldandi vinna við fimmta söguskiltið. Farið var yfir textann og útfærslu skiltisins. Staðsetning á skiltinu var rædd.
=== 2.Markaðs- og kynningarátak í Hvalfjarðarsveit ===
1905042
Umræður um markaðs- og kynningarmál í sveitarfélaginu.
Sigursteinn Sigurðsson verkefnastjóri hjá SSV kom inn á fundinn og fór yfir menningar-, kynningarmál og viðburðarhald.
Sigursteinn Sigurðsson verkefnastjóri menningarmála SSV kom inn undir þessum lið.
=== 3.Miðgarður - félagsheimili ===
2212002
Skipulagning á útisvæði við Miðgarð.
Menningar- og markaðsnefnd fór yfir útisvæðið við félagsheimilið Miðgarð. Kom upp hugmynd að nýta leiktæki sem sveitarfélagið á en eru ekki í notkun.
Fundi slitið - kl. 18:30.