Mosfellsbær
Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1560
==== 8. desember 2022 kl. 07:30, ====
2. hæð Helgafell
== Fundinn sátu ==
- Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) formaður
- Lovísa Jónsdóttir (LJó) varaformaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Anna Sigríður Guðnadóttir (ASG) aðalmaður
- Jana Katrín Knútsdóttir (JKK) aðalmaður
- Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
- Regína Ásvaldsdóttir (RÁ) bæjarstjóri
- Þóra Margrét Hjaltested embættismaður
== Fundargerð ritaði ==
Þóra Margrét Hjaltested lögmaður
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Stjórnsýslu- og rekstrarúttekt ==
[202210483](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202210483#3fa01esjl0oabf1sndmsq1)
Tillaga um að gengið verði til samninga við Strategíu um stjórnsýslu- og rekstrarúttekt í Mosfellsbæ í samræmi við fyrirliggjandi gögn.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að Strategíu verði falið að framkvæma stjórnsýslu- og rekstrarúttekt í Mosfellsbæ og felur bæjarstjóra að undirrita fyrirliggjandi samning við Strategíu.
== 2. Skýrsla verkefnastjórnar um starfsaðstæður kjörinna fulltrúa. ==
[202210046](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202210046#3fa01esjl0oabf1sndmsq1)
Skýrsla verkefnisstjórnar um bættar starfsaðstæður kjörinna fulltrúa lögð fram til kynningar.
Lagt fram.
== 3. Framtíðarskipulag Skálatúns ==
[202206678](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202206678#3fa01esjl0oabf1sndmsq1)
Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu viðræðna um framtíð Skálatúns.
Kynning á stöðu viðræðna.
== Gestir ==
- Sigurbjörg Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs
== 4. Starfsemi leikskóla milli jóla og nýárs ==
[202212062](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202212062#3fa01esjl0oabf1sndmsq1)
Tillaga um niðurfellingu leikskólagjalda milli jóla og nýárs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila leikskólastjórum að bjóða þeim foreldrum, sem taka samfellt leyfi fyrir börn sín dagana 27.12-30.12.2022, að fella niður dagvistunargjöld í samræmi við fyrirliggjandi tillögu.
== Gestir ==
- Gunnhildur Sæmundsdóttir, verkefnisstjóri leikskólamála
== 5. Varanlegur stuðningur við börn í viðkvæmri stöðu ==
[202111529](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202111529#3fa01esjl0oabf1sndmsq1)
Lögð fram tillaga um að bæjarráð samþykki að bæjarstjóri undirriti meðfylgjandi viljayfirlýsingu um varanlegan stuðning við börn í viðkvæmri stöðu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela bæjarstjóra að undirrita fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og verklagsreglur vegna verkefnisins.
== 6. Samkeppni um miðbæjargarð ==
[202111439](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202111439#3fa01esjl0oabf1sndmsq1)
Lögð fyrir bæjarráð tillaga um lúkningu samkeppni um miðbæjargarð
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum að samkeppni um miðbæjargarð verði formlega lokið í samræmi við fyrirliggjandi tillögu. Bæjarráðsfulltrúar D lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
== Gestir ==
- Jóhanna B. Hansen, framkvæmdastjóri umhverfissviðs
== 7. Hamraborgarsvæði - gatnagerð ==
[202201407](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202201407#3fa01esjl0oabf1sndmsq1)
Ósk um heimild til útboðs á gatnagerð á Hamraborgarsvæðinu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila umhverfissviði að framkvæma útboð á gatnagerð og veitulögnum vegna nýs deiliskipulags Hamraborgar.
== Gestir ==
- Jóhanna B. Hansen, framkvæmdastjóri umhverfissviðs
== 8. Frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga - beiðni um umsögn ==
[202211425](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202211425#3fa01esjl0oabf1sndmsq1)
Frá nefndarsviði Alþingis, frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekjusstofna sveitarfélaga sent til umsagnar. Umsagnarfrestur til 12. desember nk.
Lagt fram.