Norðurþing
08.12.2022 - Orkuveita Húsavíkur ohf 239. fundur
= Orkuveita Húsavíkur ohf =
Dagskrá
Freyr Ingólfsson frá Íslandsþara sat fundinn undir lið 1.
=== 1.Ósk um viðræður um veitur fyrir Íslandsþara ehf. á Húsavík ===
202211145
Íslandsþari ehf óskar eftir að fá að kynna fyrirhugaða framkvæmd stórþaravinnslu á Húsavík fyrir stjórn Orkuveitu Húsavíkur og í kjölfarið hefja viðræðum um aðgang að heitavatnslögn (>110°C), vatnsveitu og fráveitu við Orkuveitu Húsavíkur.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur þakkar Frey Ingólfssyni fyrir kynningu á verkefninu og felur rekstrarstjóra að vera í samskiptum við Íslandsþara ehf.
=== 2.Sala Vallholtsvegur 3 ===
202211140
Fyrir stjórn liggja kauptilboð í Vallholtsveg 3.
Þrjú tilboð bárust í eignina. Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir að taka hæsta tilboði frá Val ehf. og felur rekstrarstjóra að fylgja málinu eftir.
=== 3.Fráveitustofngjald verði hluti af gjaldskrá OH frá og með janúar 2023 ===
202211150
Lagt fram til stjórnar að fráveitustofngjald verði hluti af gjaldskrá Orkuveitu Húsavíkur frá og með 1. janúar 2023 og taki mið af gjaldskrárhækkun 2023.
Stjórn samþykkir að fráveitustofngjald verði hluti af gjaldskrá Orkuveitu Húsavíkur frá og með 1. janúar 2023 og taki mið af gjaldskrárhækkun 2023.
=== 4.Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála ===
202208057
Yfirferð verkefna
Mælaskipti hafin
Skoðunarferð í Orkustöðina Víðimóum
Mælaskipti hafin
Skoðunarferð í Orkustöðina Víðimóum
Fundi slitið - kl. 16:00.