Skorradalshreppur
Skipulags- og bygginganefnd - Skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepp nr. 168. fundur
=== Skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps ===
168. fundur
==== þriðjudaginn 6. desember 2022 kl.13:00, hélt skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn: Pétur Davíðsson, Ástríður Guðmundsdóttir, Ingólfur Steinar Margeirsson og Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir. ====
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi.
**ISM vék af fundi undir lið 5** **Þetta gerðist:** **Almenn mál** **1. Byggingarfltr. ONE Robot tenging við HMS byggingargátt – Mál nr. 2210004**
Tilboð lagt fram frá OneSystems í OneLandPlanning, þjóðskrárteningu, fundargátt, hýsingu v/fundargáttar, tengingu við island.is og OneLandRobot.
Samþykkt að taka inn OneLandPlanning, OneLandRobot og tilheyrandi tengingar og gáttir frá OneSystems.
**Byggingarleyfismál** **2. Fitjahlíð 95, 95a, 97, 99, 100 og 101, lóðateikning – Mál nr. 2204008**
Málinu var frestað á 159. fundi nefndarinnar. Uppfærð gögn lögð fram, austurhluti lóðar Fitjahlíðar 93A bætt inná lóðablaðið.
Samþykkt og byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
**Skipulagsmál** **3. Hagi skipting á landi – Mál nr. 1710006**
Lokagögn vegna afmörkun lóða og landskipta á jörðinni Haga lögð fram.
Samþykkt og byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
**4. Dagverðarnes 125, breyting deiliskipulags – Mál nr. 2209009**
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 4. nóvember til 4. desember 2022. Engin athugasemd barst á grenndarkynningartíma.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
**5. Refsholt 24, breyting deiliskipulags – Mál nr. 2209010**
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 4. nóvember til 4. desember 2022. Engin athugasemd barst á grenndarkynningartíma.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 14:30.