Grindavíkurbær
Frístunda- og menningarnefnd - Fundur 112
09.02.2022 - Slóð
**112. fundur frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 9. febrúar 2022 og hófst hann kl. 16:00.**
Fundinn sátu:
Garðar Alfreðsson í gegnum fjarfundabúnað, aðalmaður, Þórunn Erlingsdóttir, aðalmaður, Alexander Veigar Þórarinsson, aðalmaður, Irmý Rós Þorsteinsdóttir, formaður, Sigríður Etna Marinósdóttir í gegnum fjarfundabúnað, aðalmaður og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Fundargerð ritaði: Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
**1. Endurskoðun verklagsreglna vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur - 2201065**
Rætt um verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur.
Aðalstjórn UMFG leggur til að kjörið verði áfram leynilegt en niðurstaðan verði kynnt kjörnefnd á kjörfundi. Kjörnefnd hafi þá möguleika á að endurtaka kosninguna að því gefnu að 2/3 hluti fundarmanna samþykki það.
Nefndin samþykkir að gera ekki breytingar á verklagsreglunum.
**2. Leiksvæði í Grindavík - 2108028**
Uppfærð drög að skýrslu um framtíðarsýn fyrir leiksvæði í Grindavík lögð fram. Nefndin felur sviðsstjóra að óska eftir umsögn um skýrsluna frá hagaðilum.
**3. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2022 - 2202022**
Drög að starfsáætlun Vinnuskóla Grindavíkurbæjar sumarið 2022 lögð fram. Nefndin samþykkir starfsáætlunina.
**4. Samþykkt fyrir ungmennaráð - Endurskoðun 2022 - 2201026**
Drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir ungmennaráð lögð fram. Nefndin samþykkir samþykktirnar fyrir sitt leyti með áorðnum breytingum og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
**5. Barnabókasafn - 2201086**
Félag um barnabókasafn hefur leitað til Grindavíkurbæjar að hýsa Barnabókasafn, barnamenningarmiðstöð og fræðasetur um barnamenningu. Nefndin felur sviðsstjóra að afla frekari gagna.
**6. Fundargerðir ungmennaráðs 2021 - 2102168**
Fundargerðir 43. og 44. fundar ungmennaráðs lagðar fram.
**7. Fundargerðir ungmennaráðs 2022 - 2202023**
Fundargerð 45. fundar ungmennaráðs lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30.
Bæjarráð / 24. júní 2022
[Fundur 1613](/v/25876)
Skipulagsnefnd / 24. júní 2022
[Fundur 102](/v/25874)
Bæjarráð / 15. júní 2022
[Fundur 1612](/v/25865)
Bæjarstjórn / 8. júní 2022
[Fundur 529](/v/25839)
Bæjarráð / 25. maí 2022
[Fundur 1611](/v/25805)
Fræðslunefnd / 24. maí 2022
[Fundur 119](/v/25804)
Bæjarstjórn / 11. maí 2022
[Fundur 528](/v/25760)
Frístunda- og menningarnefnd / 11. maí 2022
[Fundur 115](/v/25756)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25736)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25735)
Bæjarráð / 4. maí 2022
[Fundur 1610](/v/25730)
Skipulagsnefnd / 3. maí 2022
[Fundur 101](/v/25727)
Hafnarstjórn / 2. maí 2022
[Fundur 482](/v/25716)
Bæjarstjórn / 27. apríl 2022
[Fundur 527](/v/25704)
Skipulagsnefnd / 20. apríl 2022
[Fundur 100](/v/25688)
Bæjarráð / 20. apríl 2022
[Fundur 1609](/v/25687)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 118](/v/25672)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 117](/v/25671)
Bæjarráð / 6. apríl 2022
[Fundur 1608](/v/25656)
Bæjarráð / 31. mars 2022
[Fundur 1605](/v/25642)
Bæjarstjórn / 30. mars 2022
[Fundur 526](/v/25639)
Bæjarráð / 23. mars 2022
[Fundur 1607](/v/25620)