Vopnafjarðarhreppur
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 5
== Fundur nr. 5 ==
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Félagsheimilið Mikligarður kl. 10:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
HH
Höskuldur HaraldssonNefndarmaður
BDS
Bylgja Dögg SigurbjörnsdóttirNefndarmaður
IDJ
Ingólfur Daði JónssonNefndarmaður
KÓP
Kristrún Ósk PálsdóttirNefndarmaður
LÁ
Lárus ÁrmannssonNefndarmaður
SGS
Sigurður Grétar SigurðssonNefndarmaður
AKÁ
Agnar Karl ÁrnasonNefndarmaður
SJ
Sigurður JónssonByggingarfulltrúi
GÁ
Gunnar ÁgústssonYrki
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
Fundur haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps 12.12 2022 í félagsheimilinu Miklagarði kl 10:00. Í upphafi fundar kom Lárus Ármannsson með athugasemd við boðun fundar.
Gjaldskrá Vopnafjarðarhafnar 2023 lögð fram til kynningar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að sett verði inn farþegagjald fyrir skemmtiferðaskip.
Gjaldskráin verður að öðru leyti afgreidd á sveitarstjórnarfundi 15.desember 2022 og tekur gildi 1.janúar 2023.
Samþykkt samhljóða.
Lögð fram umsókn um styrk vegna gangnakofans Geldings. Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til afgreiðslu í hreppsráði.
Samþykkt samhljóða.
Minnisblað vegna húsnæðisáætlunar Vopnafjarðarhrepps lagt fram til kynningar.
Minnisblað um stöðu skipulagsverkefna hjá Vopnafjarðarhreppi lagt fram til kynningar.
Gunnar Ágústsson, skipulagsfræðingur kynnti minnisblað um tillögur fyrir nýtt aðalskipulag.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fresta málinu til næsta fundar ráðsins.
Samþykkt samhljóða.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 11:02.