Grindavíkurbær
Bæjarstjórn - Fundur 534
**534. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 13. desember 2022 og hófst hann kl. 16:00.** **Fundinn sátu:** Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Helga Dís Jakobsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sævar Þór Birgisson, varamaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður.Gunnar Már Gunnarsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Unnar Á Magnússon, varamaður. **Einnig sat fundinn:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri. **Fundargerð ritaði:** Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 10. mál: Aðalskipulagsbreyting í Reykjanesbæ Vinnslutillaga ósk um umsögn - 2211073.
Samþykkt samhljóða.
**Dagskrá:**
**1. Kjarasamningsumboð - Samband íslenskra sveitarfélaga - 2211068**
Til máls tók: Ásrún.
Sveitarfélögin veita Sambandi íslenskra sveitarfélaga umboð til kjarasamninga vegna hvers og eins stéttarfélags sem starfsmenn þess eiga aðild að. Endurnýja þarf kjarasamningsumboð til samræmis við núverandi stöðu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningagerðar fyrir sína hönd við tilgreind stéttarfélög.
Jafnframt er bæjarstjóra falið að rita undir samkomulag um kjarasamningsumboð.
**2. Breyting á starfsmannastefnu - Heilsuefling - 2212017**
Til máls tók: Ásrún.
Lögð fram eftirfarandi tillaga að breytingu á heilsueflingarkafla starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar:
Að árlegur hámarksstyrkur verði 40.000 kr. í stað 30.000 kr. og að 9. töluliður verði felldur á brott.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.
**3. Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjöld - 2212002**
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir byggingar-, skipulags-, og þjónustugjöld Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.
**4. Gjaldskrá og samþykkt fráveitu Grindavíkurbæjar - 2212001**
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir fráveitu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.
**5. Breyting á gjaldskrá um sorpgjöld og sorphirðu í Grindavík - 2022 - 2211054**
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Grindavíkurbæ lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.
**6. Samþykkt um gatnagerðargjöld - tillaga að breytingu des 2022 - 2212004**
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á samþykkt um gatnagerðargjöld í Grindavík lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.
**7. Reglur um lóðarúthlutanir - tillaga að breytingu des 2022 - 2212003**
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á reglum um lóðarúthlutanir í Grindavík lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.
**8. Gjaldskrá vatnsveitu Grindavíkurbæjar - 2211075**
Til máls tók: Ásrún.
Drög að breytingum á gjaldskrá fyrir vatnsveitu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.
**9. Kalka sorpeyðing - Söfnun úrgangs og söfnunarílát - 2211092**
Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri og Hjálmar.
Lagt fram erindi frá Kölku, dags. 22.11.2022 þar sem óskað er eftir samþykki bæjarins að Kalka sjái um söfnun úrgagns frá heimilum vegna fjögurra úrgangsflokka og sjái líka um fjármögnun söfnunarílátanna.
Vegna nýrra upplýsinga varðandi mögulegan fjölda af tunnum er lagt til að fresta málinu og taka það upp til umræðu á næsta fundi bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fresta málinu.
**10. Aðalskipulagsbreyting í Reykjanesbæ Vinnslutillaga ósk um umsögn - 2211073**
Til máls tók: Ásrún.
Reykjanesbær óskar umsagnar við vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar á Reykjanesi. Breytingin varða stækkun á iðnaðarsvæði i5 og aukning á byggingarmagni. Gert er ráð fyrir uppbyggingu fiskeldis á svæðinu.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi sínum þann 5.12.2022 og gerði ekki athugasemd við skipulagstillöguna og vísaði afgreiðslu málsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða bókun skipulagsnefndar.
**11. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2210059**
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hjálmar, Hallfríður og bæjarstjóri.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 29, dags. 10.03.2022 er lögð fram til kynningar.
**12. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2210059**
Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 30, dags. 07.04.2022 er lögð fram til kynningar.
**13. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2210059**
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hallfríður, bæjarstjóri og Hjálmar.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 31, dags. 06.10.2022 er lögð fram til kynningar.
**14. Fundargerðir 2022 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2210059**
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, Hjálmar og bæjarstjóri.
Fundargerð svæðisskipulags Suðurnesja nr. 32, dags. 10.11.2022 er lögð fram til kynningar.
**15. Bæjarráð Grindavíkur - 1630 - 2212002F **
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar og bæjarstjóri.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**16. Skipulagsnefnd - 110 - 2212001**F
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Rán, Unnar, Birgitta Hrund og Hjálmar.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
**17. Frístunda- og menningarnefnd - 121 - 2212005F **
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Birgitta Hrund.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00
Bæjarstjórn / 14. desember 2022
[Fundur 534](/v/26145)
Hafnarstjórn / 13. desember 2022
[Fundur 487](/v/26144)
Skipulagsnefnd / 7. desember 2022
[Fundur 110](/v/26136)
Bæjarráð / 7. desember 2022
[Fundur 1630](/v/26135)
Bæjarstjórn / 1. desember 2022
[Fundur 533](/v/26129)
Bæjarráð / 23. nóvember 2022
[Fundur 1629](/v/26114)
Skipulagsnefnd / 22. nóvember 2022
[Fundur 109](/v/26113)
Bæjarráð / 16. nóvember 2022
[Fundur 1628](/v/26093)
Bæjarráð / 10. nóvember 2022
[Fundur 1627](/v/26080)
Skipulagsnefnd / 8. nóvember 2022
[Fundur 108](/v/26076)
Frístunda- og menningarnefnd / 3. nóvember 2022
[Fundur 120](/v/26069)
Bæjarráð / 2. nóvember 2022
[Fundur 1626](/v/26066)
Fræðslunefnd / 27. október 2022
[Fundur 124](/v/26057)
Bæjarstjórn / 26. október 2022
[Fundur 532](/v/26054)
Bæjarráð / 19. október 2022
[Fundur 1625](/v/26039)
Hafnarstjórn / 13. október 2022
[Fundur 485](/v/26034)
Bæjarráð / 12. október 2022
[Fundur 1624](/v/26029)
Bæjarráð / 11. október 2022
[Fundur 1623](/v/26028)
Skipulagsnefnd / 11. október 2022
[Fundur 107](/v/26026)
Skipulagsnefnd / 6. október 2022
[Fundur 106](/v/26022)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. október 2022
[Fundur 119](/v/26021)
Bæjarstjórn / 3. október 2022
[Fundur 531](/v/26007)
Fræðslunefnd / 3. október 2022
[Fundur 123](/v/26006)
Bæjarráð / 3. október 2022
[Fundur 1622](/v/26005)
Bæjarráð / 14. september 2022
[Fundur 1621](/v/25980)
Hafnarstjórn / 13. september 2022
[Fundur 484](/v/25975)