Skagafjörður
Byggðarráð Skagafjarðar
= Byggðarráð Skagafjarðar =
Dagskrá
=== 1.Svæðisáætlun sveitarfélaga ===
2111190
Lögð fram Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs - Yfirlit og drög að stefnumótun unnin af Stefáni Gíslasyni fyrir sveitarfélög á Norðurlandi.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera athugasemdir við stefnumótunina í samræmi við umræður á fundinum.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera athugasemdir við stefnumótunina í samræmi við umræður á fundinum.
=== 2.Niðurfelling gatnagerðargjalda ===
2212094
Byggðarráð samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að samþykkja að um lóðir sem byggingarleyfi er veitt fyrir frá og með 1. janúar 2023 gildi tímabundin niðurfelling gatnagerðargjalda af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á eftirgreindum lóðum við þegar tilbúnar götur á Hofsósi og Steinsstöðum. Verði það gert á grundvelli sérstakrar lækkunarheimildar sem hægt er að veita skv. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Niðurfellingin gildir um eru eftirtaldar lóðir á Hofsósi: Kárastígur nr. 4 og 6, Kirkjugata nr. 11, Sætún nr. 1-5 (raðhús) og 12 og Hátún nr. 1, 2, 3, 4, 5 og nr. 6-8 (parhús). Niðurfellingin gildir um eru eftirtaldar lóðir að Steinstöðum: Lækjarbrekka nr. 2, 4, 6 og Lækjarbakki nr. 1.
Frá og með 1. janúar 2023 munu allar lóðir á Sauðárkróki og í Varmahlíð bera full gatnagerðargjöld. Gildir það um allar lóðir sem úthlutað verður í fyrsta sinn á Sauðárkróki og í Varmahlíð og einnig þær lóðir sem kunna að koma til endurúthlutunar, jafnvel þótt þeim hafi áður verið úthlutað án gatnagerðargjalds. Framangreindar lóðir á Hofsósi og að Steinsstöðum bera, verði ekki annað ákveðið, full gatnagerðargjöld eftir 31.12. 2023, sé þeim úthlutað eftir það tímamark. Fyrri samþykktir um niðurfellingu gatnagerðargjalda í sveitarfélaginu falla niður frá og með 1. janúar 2023.

=== 3.Afskriftarbeiðnir 2022 ===
2203011
Lögð fram afskriftarbeiðni nr. 202212091429362 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsett 9. desember 2022. Óskað er eftir afskrifa fyrnd þing- og sveitarsjóðsgjöld að höfuðstólsfjárhæð 15.050 kr. og dráttarvexti 8.031 kr., samtals afskrift 23.081 kr.
Byggðarráð samþykkir að afskrifa framangreindar kröfur.
Byggðarráð samþykkir að afskrifa framangreindar kröfur.
=== 4.Háeyri 8 - Lóðarmál ===
2105068
Fyrir fundinum liggja drög að samningi á milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og Krókfisks ehf. kt. 680403-2440 um að sveitarfélagið leysi til sín lóðina að Háeyri 8, sem félagið er lóðarhafi að skv. lóðarleigusamningi dags. 10.12. 2004. Samningurinn var gerður í kjölfar þess að sveitarfélagið hóf innlausnarmál vegna lóðarinnar á grundvelli þess að ekki hafi verið byggt á henni innan tilskilins frests. Samkomulagið gerir ráð fyrir að lóðarhafa verði endurgreidd gatnagerðargjöld (A-gjald) sem hann greiddi til sveitarfélagsins árið 2000.
Umræddur samningur var gerður með fyrirvara um endanlegt samþykki þeirra stjórnsýslueininga sveitarfélagsins Skagafjarðar sem reglur sveitarfélagsins krefja. Þar sem lóðin er á svæði Sauðárkrókshafnar er gert ráð fyrir að umhverfis- og samgöngunefnd þurfi að samþykkja innlausnina, auk byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir innlausnina fyrir sitt leyti og að byggingarréttur að lóðinni gangi til eignasjóðs. Byggðarráð felur jafnframt sveitarstjóra að greiða framangreindum lóðarhafa umsamið innlausnarverð gegn undirritun lóðarhafa á skjal sem færir eingarrétt að bygginarrétti lóðarinnar yfir á sveitarfélagið, þegar fyrir liggur staðfesting sveitarstjórnar á ráðgerðri ákvörðun umhverfis- og samgöngunefndar um að samþykkja samninginn.

=== 5.Hátún 2 - Umsagarbeiðni vegna rekstrarleyfis ===
2212063
Lögð fram umsagnarbeiðni frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra úr máli 2022-060441. Gunnlaugur Hrafn Jónsson, Hátúni 1, 561 Varmahlíð sækir um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-G íbúðir, gististaður án veitinga, í fasteigninni Hátún 2, F214-0475. Hámarks gestafjöldi er 8 gestir.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
=== 6.Samráð; Drög að reglugerð um meðhöndlun úrgangs ===
2212076
Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 8. desember 2022 þar sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 243/2022, "Drög að reglugerð um meðhöndlun úrgangs". Umsagnarfrestur er til og með 23.12.2022.
=== 7.Breytingar í barnaverndarþjónustu sveitarfélaga ===
2212034
Lagt fram til kynningar bréf dagsett 5. desember 2022 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi breytingar í barnaverndarþjónustu sveitarfélaga.
Fundi slitið - kl. 15:24.