Mosfellsbær
Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1561
==== 15. desember 2022 kl. 07:30, ====
2. hæð Helgafell
== Fundinn sátu ==
- Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) formaður
- Lovísa Jónsdóttir (LJó) varaformaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Anna Sigríður Guðnadóttir (ASG) aðalmaður
- Rúnar Bragi Guðlaugsson (RBG) varamaður
- Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
- Regína Ásvaldsdóttir (RÁ) bæjarstjóri
- Þóra Margrét Hjaltested embættismaður
== Fundargerð ritaði ==
Þóra Margrét Hjaltested lögmaður
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga ==
[202212186](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202212186#ihdwyaahlkmmfiazstabqa1)
Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2022-2026 lögð fram til kynningar.
Lagt fram.
== 2. Ósk um úthlutun lóða fyrir leiguíbúðir Bjargs og aðlögun skipulagsskilmála ==
[202211183](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202211183#ihdwyaahlkmmfiazstabqa1)
Umbeðin umsögn skipulagsfulltrúa og lögmanns Mosfellsbæjar lögð fram.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa þeim hluta málsins sem lýtur að breytingu á skipulagi til skipulagsnefndar.
== 3. Krafa um endurgreiðslu byggingaréttargjalds ==
[202110364](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202110364#ihdwyaahlkmmfiazstabqa1)
Niðurstaða héraðsdóms lögð fram til kynningar.
Lagt fram.
== 4. Kæra til ÚÚA vegna frágangs á svæði við Ástu-Sólliljugötu 19-21 ==
[202208722](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202208722#ihdwyaahlkmmfiazstabqa1)
Úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála lagður fram til kynningar.
Lagt fram.
== 5. 5. áfangi Helgafellshverfis - úthlutun lóða ==
[202212063](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202212063#ihdwyaahlkmmfiazstabqa1)
Upplýsingar um lóðir sem fyrirhugað er að úthluta í 5. áfanga Helgafellshverfis.
Upplýsingar og umræða um þær lóðir sem fyrirhugað er að úthluta í 5. áfanga Helgafellshverfis.
== Gestir ==
- Kristinn Pálsson, skipulagsfulltrúi
== 6. Jarðborun Iceland Resoures ehf. eftir gulli í Þormóðsdal - starfsleyfi í auglýsingu til umsagnar ==
[202211318](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202211318#ihdwyaahlkmmfiazstabqa1)
Tillaga að umsögn til Heilbrigðiseftirlits vegna umsóknar Iceland Resources ehf. um starfsleyfi fyrir jarðboranir í Þormóðsdal.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að senda umsögn til Heilbrigðiseftirlits í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað og önnur viðeigandi gögn.
== Gestir ==
- Kristinn Pálsson, skipulagsfulltrúi
== 7. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2022 til 2025 ==
[202105196](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202105196#ihdwyaahlkmmfiazstabqa1)
Viðauki 7 - vegna framlaga til Strætó bs. og Skálatúns.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum viðauka 7 við fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2022. Viðaukinn felur í sér að framlög til Strætó bs. hækka um kr. 28.324.643, framlög til Skálatúns hækka um kr. 164.236.000, tekjur frá Jöfnunarsjóði hækka um kr. 91.000.000 og áætlaðar tekjur af útsvari hækka um kr. 101.560.643. Breytingin hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu eða fjármögnun.
== Gestir ==
- Pétur J. Lockton, fjármálastjóri
== 8. Rekstur deilda janúar til september 2022 ==
[202212145](/stjornsysla/baejarstjorn-rad-og-nefndir/mal/202212145#ihdwyaahlkmmfiazstabqa1)
Minnisblað fjármáladeildar um rekstur A og B hluta janúar til september 2022.
Pétur J. Lockton, fjármálastjóri, fór yfir yfirlit yfir rekstur A og B hluta janúar til september 2022.
== Gestir ==
- Pétur J. Lockton, fjármálastjóri