Húnaþing vestra
Ungmennaráð - 72. Fundur
**Dagskrá.**
1. Nýting á styrk í gegnum Húnaklúbbinn.
2. Sameiginleg forvarnaráætlun á Norðurlandi vestra.
3. Drög að reglum um skólaakstur.
4. Styrkbeiðni fyrir áramótaball fyrir 7.-10. bekk.
**Afgreiðslur:** **1. Nýting á styrk í gegnum Húnaklúbbinn.**
Jessica Aquino mætti til fundar undir þessum lið. Patrekur Óli og Jessica munu ganga frá pöntun frisbýgólfkörfum í samráði við sveitarstjóra og rekstrarstjóra. Einnig vill ungmennaráð auglýsa þegar körfurnar verða vígðar og koma saman af því tilefni.
**2. Sameiginleg forvarnaráætlun á Norðurlandi vestra.**
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti undirbúning að sameiginlegri forvarnaráætlun á Norðurlandi vestra. Ungmennaráð fagnar undirbúningi áætlunarinnar. Ungmennaráð bendir á málaflokka sem bæta má fræðslu í eins og heimilsofbeldi, fíkni- og vímuefni, samskipti á netinu og skyndihjálp.
**3. Drög að reglum um skólaakstur.**
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti drög að reglum um skólaakstur. Ungmennaráð gerir endar athugasmedur. Ástríður Halla Reynisdóttir mætti til fundar kl. 16:49 undir þessum lið.
**4. Styrkbeiðni fyrir áramótaball fyrir 7.-10. bekk.**
Ungmennaráð samþykkir að styrkja hljómsveitina Áramót um 62.000 kr, áramótaballs fyrir ungmenni 30. desember. Það jafngildir 1000 kr. lækkun á miðverði fyrir nemendur í 7. 10. bekk Grunnskóla Húnaþings vestra. Með fyrirvara um samþykki byggðarráðs og/eða sveitarstjórnar.
**Fundi slitið 17:09**