Svalbarðsstrandarhreppur
Sveitarstjórn
|
|
**1. ** |
|
**Samkomulag um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar - 2212004**
|
||
|
Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 16.12.2022, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar.
|
||
|
*Eftirfarandi tillaga lögð fram. *
Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 16.12.2022, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 16.12.2022,
samþykkir sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2023 hækki um 0,22% og verði 14,74%.
|
|
|
||
|
|
|
**2. ** |
|
**Samningur um sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar á landsvísu - 2209003**
|
||
|
Drög að samningi um umdæmisráð barnaverndar lögð fram til samþykktar.
|
||
|
*Sveitarstjóra falið að undirrita samning um umdæmisráð barnaverndar hvort sem ákveðið verður að ganga til samninga á grundvelli hins nýja samnings, nefnd leið 1, eða samnings sem lagður var fram á 97. fundi sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps. *
|
|
|
||
|
|
|
**3. ** |
|
**Jafnlaunavottun sveitarfélaga - 1909003**
|
||
|
Jafnlaunastefna Svalbarðsstrandarhrepps lögð fram til samþykktar.
|
||
|
*Jafnlaunastefna lögð fram og samþykkt af sveitarstjórn.*
|
|
|
||
|