Grindavíkurbær
Hafnarstjórn - Fundur 479
24.11.2021 - Slóð
**479. fundur Hafnarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 24. nóvember 2021 og hófst hann kl. 17:00.**
Fundinn sátu:
Ómar Davíð Ólafsson formaður, Páll Jóhann Pálsson aðalmaður,
Hallfreður G Bjarnason aðalmaður, Páll Gíslason aðalmaður, Páll Valur Björnsson varamaður í stað Bergþóru Gísladóttur aðalmanns og Sigurður A Kristmundsson hafnarstjóri.
Fundargerð ritaði: Sigurður A Kristmundsson hafnarstjóri.
Dagskrá:
**1. Grindavík 2021 - Frumathugun á ytri skjólgörðum og breikkaðri innsiglingarrennu - 2111079**
Fannar Jónasson bæjarstjóri, Atli Geir Júlíusson sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Helgi G. Gunnarsson verkfræðingur frá Vegagerðinni sátu fundinn undir þessum lið. Helgi skýrði frá ýmsum athugnum sem hann hefur unnið að, sem snúa að því að skoða ýmsar útfærslur á því hvaða áhrif mögulegar breytingar á breikkun/dýpkun ytri og innri innsiglingarrennu ásamt hugsanlegum brimvarnagörðum til að mynda skjól fyrir skip á leið í innsiglingu til eða frá höfn.
Hafnarstjórn þakkar Helga og Siglingasviði fyrir frumdrög að áhugaverðum hafnabótum og felur hafnarstjóra að óska eftir frekari útfærslum.
**2. Breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins við Eyjabakka - 2110069**
Atli Geir Júlíusson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti framtíðaruppbyggingu deiliskipulags við Eyjabakka. Hafnarstjórn gerir engar athugasemdir.
**4. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2022 - 2111078**
Hafnarstjórn samþykkir nýja þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar sem tekur gildi 1. janúar 2022.
**5. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2107043**
Staðfest fjárhagsáætlun 2022-2025 lögð fram
**6. Grindavík-Viðgerð Kvíabryggju og stormpolli 2021 - 2109112**
Vegna tafa sem hafa orðið á verkinu sökum þess að boltar sem notaðir eru til að festa dekkið niður, þarf að öllum líkindum að fresta verkinu fram á næsta sumar. Hafnarstjóra er falið að sjá til þess að bryggjan komist í notkun, en heimila aðeins takmarkaða þyngd ökutækja á bryggjunni á þeim stað sem ekki er búið að endurnýja í samráði við eftirlitsmann verksins.
Bílstjórum þyngri ökutækja og fiskibátar sem þurfa að nýta sér löndunarkrana hafnarinnar verði bent á að nota krana 2 og 3 þar sem viðgerð á bryggjunni er lokið og nýja löndunarkranann við Miðgarð.
**7. Bréf frá DDH ehf - 2111080**
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.
**8. Nýr löndunarkrani - 2108094**
Staða verkefnis lögð fram
**3. Umsókn um endurnýjun og stækkun á eldsneytistanki við smábátabryggju - 2111081**
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við þessa umsókn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:15.
Bæjarráð / 24. júní 2022
[Fundur 1613](/v/25876)
Skipulagsnefnd / 24. júní 2022
[Fundur 102](/v/25874)
Bæjarráð / 15. júní 2022
[Fundur 1612](/v/25865)
Bæjarstjórn / 8. júní 2022
[Fundur 529](/v/25839)
Bæjarráð / 25. maí 2022
[Fundur 1611](/v/25805)
Fræðslunefnd / 24. maí 2022
[Fundur 119](/v/25804)
Bæjarstjórn / 11. maí 2022
[Fundur 528](/v/25760)
Frístunda- og menningarnefnd / 11. maí 2022
[Fundur 115](/v/25756)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25736)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25735)
Bæjarráð / 4. maí 2022
[Fundur 1610](/v/25730)
Skipulagsnefnd / 3. maí 2022
[Fundur 101](/v/25727)
Hafnarstjórn / 2. maí 2022
[Fundur 482](/v/25716)
Bæjarstjórn / 27. apríl 2022
[Fundur 527](/v/25704)
Skipulagsnefnd / 20. apríl 2022
[Fundur 100](/v/25688)
Bæjarráð / 20. apríl 2022
[Fundur 1609](/v/25687)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 118](/v/25672)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 117](/v/25671)
Bæjarráð / 6. apríl 2022
[Fundur 1608](/v/25656)
Bæjarráð / 31. mars 2022
[Fundur 1605](/v/25642)
Bæjarstjórn / 30. mars 2022
[Fundur 526](/v/25639)
Bæjarráð / 23. mars 2022
[Fundur 1607](/v/25620)