Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
784. stjórnarfundur SSS 14. desember 2022
= 784. stjórnarfundur SSS 14. desember 2022 =
Árið 2022, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 14. desember, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Mætt eru: Friðjón Einarsson, Anton Kristinn Guðmundsson, Björn G. Sæbjörnsson, Sverrir Auðunsson og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.
hans.
Friðjón Einarsson formaður stjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.
**Dagskrá**:
1.
*Minnisblað til ráðherra og bæjarstjórna á Suðurnesjum, dags. 29.11.2022. Erindi: Fjárhagsaðstoð við að stofna og reka FAB Lab stafræna smiðju á Suðurnesjum*. Stjórn S.S.S. samþykkir að taka þátt í verkefninu að því gefnu að fjármögnun þess frá öðrum þátttökuaðilum sé tryggð og langtímasamningur liggi fyrir. Lagt er til að verkefni verði hluti af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Suðurnesja 2023-2024.
2.
*Ráðstefna Jarðvanga 2024, tilboð frá Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes UNESCO Geopark.* Markaðsstofa Reykjaness og Reykjanes UNESCO Geopark sendu inn tilboð í 17. ráðstefnu Evrópska jarðvanga sem halda á árið 2024. Stjórn S.S.S. fagnar framtakinu og þakkar fyrir vel unnið tilboð sem hefði ekki orðið að veruleika nema búið hefði verið að vinna undirbúningsvinnu í gegnum áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurnesja.
3.
*Fundargerð stýrihóps Stjórnarráðs um byggðamál nr. 85, dags. 07.11.2022.* Lagt fram.
4.
*Fundargerðir stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja* * a.* * Fundargerð nr. 44, dags. 15.09.2022.* b. *Fundargerð nr. 45, dags. 17.11.2022.* Lagt fram.
5.
*Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2022-2026.* Lagt fram. Sveitarstjórnarfólk á Suðurnesjum er hvatt til þess að kynna sér stefnumörkunina vel.
6.
*Umsagnir frá nefndarsviði Alþingis.* a. *Þingsályktunartillaga um fyrirkomulag matvælaframleiðslu til neyðarbirgða, 397.mál.* [ b. https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/0216.pdf](https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/0216.pdf) *Þingsályktunartillaga um millilandaflug um Hornarfjarðarflugvöll, 36.mál.* [Lagt fram.](https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/0036.pdf)Lagt fram. *https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/0036.pdf*
7.
*Tölvupóstur frá Fannari Jónassyni f.h. Grindvíkurbæjar, dags. 16.11.2022 vegna tilnefningar í vatnasvæðanefndir.* *Stjórn S.S.S. felur framkvæmdastjóra málið áfram til næsta fundar.*
8.
*Drög að samningi vegna atvinnuráðgjafa á landsbyggðinni. a.* * Reikniregla.* b. *Skipting fjármagns* . Gert er ráð fyrir því að samningurinn til S.S.S. lækki um kr.1.016.165,- frá fyrra ári, stjórn S.S.S. harmar það og felur framkvæmdastjóra að upplýsa þingmenn kjördæmisins þróun málsins. Stjórn S.S.S. felur framkvæmdastjóra að undirrita samninginn fyrir hönd S.S.S.
9.
*Starfsáætlun SSS/Heklunnar/MR/RGP 2023.* Starfsáætlun SSS/Heklunnar/MR/RGP lögð fram til kynningar. Framkvæmdastjóra falið að senda áætlunina til sveitarfélaganna á Suðurnesjum til upplýsinga.
10.
*Önnur mál.*
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 8:50.