Skorradalshreppur
Hreppsnefnd - 176. fundur
=== Hreppsnefnd Skorradalshrepps ===
Fundur nr. 176
==== þriðjudaginn 13. desember 2022 kl.17:30, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn: Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Óli Rúnar Ástþórsson, Kristín Jónsdóttir og Sigrún Guttormsdóttir Þormar. ====
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður.
**Þetta gerðist:**
**Almenn mál**
Ákvörðun útsvarsprósentu fyrir árið 2023 – Mál nr. 2212005
Oddviti leggur fram tillögu um útsvarsprósentu fyrir árið 2023, leggur til að hækka prósentuna frá 12,44% í 12,66%.
Er það gert með fyrirvara um að Alþingi samþykkti breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaganna fyrir áramót.
Vísa í erindi frá framkvæmdarstjóra Samband Íslenskra sveitarfélaga er barst í dag í tölvupósti.
Tillagan rædd. KJ og JEE styðja framlagða tillögu. ÓRÁ, SGÞ og PD samþykka
að leggja á óbreytt lágmarksútsvar.
**2. ** ** Fjárhagsáætlun 2023 – Mál nr. 2210007**
Fjárhagsáætlun lögð fram til seinni umræðu.
Fjárhagsáætlun samþykkt með breytingum. Áætlun samþykkt með afgangi. Hreppsnefnd samþykkir að álagningarhlutfall fasteignagjalda fyrir árið 2023 verði óbreytt frá fyrra ári, fyrir A-stofn 0,45% og fyrir C-stofn 1,28%.
**3. 3 ára fjárhagsáætlun 2024-2026 – Mál nr. 2211011**
Seinni umræða um 3. ára fjárhagsáætlun
Áætlunin samþykkt samhljóða.
**4. Erindi frá vinnuhópi um eigandastefnu Faxaflóahafna. – Mál nr. 2204012**
Á fundi hreppsnefndar þann 27. maí s.l. var frestað að afgreiða tillögur á breytingum á sameignarfélagssamningi Faxaflóahafna og eins nýrri eigandasamþykkt. Hreppsnefnd lagði til breytingu á sameignarfélagssamningi og frestaði síðan afgreiðslu. Á aðalfundi
Faxaflóahafna þann 24. júní var breyting á sameignarfélagssamningi samþykkt með 95,64% atkvæðamagni eiganda ótengd mætingu á
aðalfundinn. Skorradalshreppur sat hjá við afgreiðsluna.
**Sameignarfélagsamningur:**
Líst er vonbrigðum að tillaga sveitarstjórnar frá 27. maí s.l. hafi ekki fengið umræðu og afgreiðslu annaðhvort hjá vinnuhópi um eigandastefnu eða á aðalfundinum sjálfum áður en sameignarfélagssamningurinn var afgreiddur.
*Eigandastefna*
Hreppsnefnd fellst á tillögur á breytingum á eigandastefnu Faxaflóahafna. Í drögunum felast umbætur á stjórnarháttum, upplýsingagjöf til eiganda, samskiptum og breyttu fyrirkomulagi á ákvörðunartöku. Hreppsnefnd óskar eftir því til framtíðar að allir eigendur komi að samráði við breytingar á eigandastefnu og sameignarfélagssamningi.
**:** **5. Eigendafundur Faxaflóahafna sf. – Mál nr. 2212007**
Boðað til eigendafundar Faxaflóahafna sf. þann 4. janúar n.k. í samræmi við grein 4.3 í sameignarfélagssamningi um félagið. Breyting á reglugerð um Faxaflóahafnir hefur verið samþyktt af Innviðaráðuneytinu. Á dagskrá fundarins er undirritun ný sameignarsamnings, lýst verður kjör og tilnefningu nýrra sjórnarmanna. Eins verður borin upp tillaga að nýrri eigandastefnu félagsins.
Samþykkt að Jón Eiríkur Einarsson fari á fundinn. Til vara Óli Rúnar Ástþórsson.
**6. Þróunarfélag Grundartanga ehf. – Mál nr. 2212002**
Erindi frá oddvita
Minnisblað frá oddvita lagt fram.
Samþykkt.
**7. Umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni – Mál nr. 2209013**
Lagður fram breyttur samningur umdæmisráðs barna á landsbyggðinni. Hefur tekið nokkrum breytingum frá samþykkt í september s.l. Farið yfir breytingarnar. Samþykktar breytingar og oddvita falið undirrita hana.
**8. Grænbók í sveitarstjórnarmálum með stöðumati og valkostum sveitarstjórnarstigsins til framtíðar – Mál nr. 2212009**
Erindi frá Innviðarráðuneytinu.
Eftir víðtæka gagnasöfnun hefur grænbók í sveitarstjórnarmálum með stöðumati og valkostum sveitarstjórnarstigsins til framtíðar litið dagsins ljós í samráðsgátt stjórnvalda.
Farið yfir erindið. Oddvita falið að semja og senda umsögn í samráðsgáttina.
**Fundargerðir til staðfestingar** **9. Skipulags- og byggingarnefnd – 168 – Mál nr. 2212002F
**Lögð fram fundargerð frá 6. desember s.l.
Fundargerðin samþykkt í öllum 5 liðum.
9.1 2210004 – Byggingarfltr. ONE Robot tenging við HMS byggingargátt
9.2 2204008 – Fitjahlíð 95, 95a, 97, 99, 100 og 101, lóðateikning
9.3 1710006 – Hagi skipting á landi
9.4 2209009 – Dagverðarnes 125, breyting deiliskipulags
9.5 2209010 – Refsholt 24, breyting deiliskipulags
**Fundargerðir til kynningar** **12. Fundargerð nr. 915 í stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga – Mál nr.2212001**
Lögð fram
**13. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands fundargerð nr. 179 – Mál nr. 2212004**
Lögð fram
**14. Faxaflóahafnir – aðalfundargerð 2022 – Mál nr. 2212008**
Lögð fram til kynningar.
**Skipulagsmál** **10. Refsholt 24, breyting deiliskipulags – Mál nr. 2209010**
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr.skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 4. nóvember til 4. desember 2022.Engin athugasemd barst á grenndarkynningartíma. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr.skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
**11. Dagverðarnes 125, breyting deiliskipulags – Mál nr. 2209009**
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr.skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 4. nóvember til 4. desember 2022. Engin athugasemd barst á grenndarkynningartíma. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 20:45.