Hvalfjarðarsveit
Menningar- og markaðsnefnd 36. fundur
= Menningar- og markaðsnefnd =
Dagskrá
=== 1.Miðgarður - félagsheimili ===
2212002
Erindi frá Áskeli Þórissyni og Pálma Bjarnasyni.
Menningar- og markaðsnefnd þakkar fyrir innsent erindi en getum því miður ekki orðið við beiðninni.
=== 2.Samstarf við Hvalfjarðarsveit ===
2212035
Erindi frá Skagafréttum.
Menningar- og markaðsnefnd þakkar erindið en getur ekki orðið við því en munum hafa þennan miðil í huga þegar við auglýsum. Nefndin óskar bréfritara velfarnaðar.
=== 3.Safnaklasi Vesturlands - stofnun. ===
2212019
Erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.
Menningar- og markaðsnefnd tekur jákvætt í erindið en óskar eftir að fá frekari upplýsingar um verkefnið.
=== 4.Merking sögu og merkisstaða ===
1911013
Undirbúningur við fimmta skiltið.
Menningar- og markaðsnefnd hélt áfram vinnu við fimmta skiltið og textagerð er hafin.
=== 5.Markaðs- og kynningarátak í Hvalfjarðarsveit ===
1905042
Kynningarmál Hvalfjarðarsveitar.
Menningar- og markaðsnefnd hóf hugmyndavinnu við markaðssetningu sveitarfélagsins á samfélagsmiðlum.
=== 6.Styrktarsjóður EBÍ 2022. ===
2203059
Lokaskýrsla vegna styrkveitingar 2022.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 18:30.