Akraneskaupstaður
Skóla- og frístundaráð
[s. 433 1000](tel:4331000) [Vefir Akraneskaupstaðar](#)
= Skóla- og frístundaráð =
Dagskrá
=== 1.Leikskóli Skógarhverfi, Asparskógar 25 ===
2008156
Ósk stjórnenda Garðasels um auka skipulagsdag/a vegna flutninga í nýjan leikskóla í janúar. Alfreð Alfreðsson og áheyrnarfulltrúar leikskólanna sátu fundinn undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráð samþykkir að bæta við einum skipulagsdegi í leikskólanum Garðaseli þegar kemur að því að flytja alla starfsemina yfir í nýja húsnæðið.
Alfreð og áheyrnarfulltrúar leikskólanna yfirgefa fundinn.
=== 2.Rafíþróttafélag á Akranesi ===
2207126
Kynning á samkomulagi um afnot ÍA-RAF af íþróttahúsinu á Vesturgötu - sal 2 á Þekjunni. Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja og Guðmunda Ólafsdóttir framkvæmdarstjóri ÍA sitja fundinn undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráð fagnar því að tekist hefur að finna rafþróttafélaginu ÍA-RAF rými í íþróttamannvirkjum bæjarins og óskar félaginu velfarnaðar í starfi.
=== 3.Íþróttalíf á Akranesi - bæjarstjórn unga fólksins ===
2211129
Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri, Ívar Orri Krisjánsson forstöðumaður Þorpsins, Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja og Guðmunda Ólafsdóttir framkvæmdarstjóri ÍA sitja fundinn undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir góðar ábendingar er varða íþróttalíf á Akranesi. Ráðið ræddi um opnunartíma íþróttamannvirkja, fyrirkomulag frístundastyrkja og aðgengi að íþróttum og íþróttamannvirkjum. Skóla- og frístundaráð felur forstöðumanni íþróttamannvirkja að koma með tillögur að breytingum á opnunartíma mannvirkjanna.
Heiðrún, Ívar, Daníel og Guðmunda víkja af fundi
=== 4.Húsnæðisáætlun 2023 ===
2209033
Til kynningar árleg húsnæðisáætlun fyrir HMS. Valdís Eyjólfsdóttir verkefnastjóri fylgir málinu eftir.
Húsnæðisáætlun 2023 lögð fram til kynningar. Skóla- og frístundaráð þakkar Valdísi fyrir góða yfirferð.
Valdís víkur af fundi.
=== 5.Fundargerðir 2022 - menningar- og safnanefnd ===
2201006
114. fundargerð menningar- og safnanefndar frá 19. desember 2022.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
=== 6.Styrkir til menningartengdra verkefna árið 2023 ===
2212093
Menningar- og safnanefnd vísar breytingartillögum á reglum vegna styrkumsókna á sviði menningarmála til skóla- og frístundaráðs.
Skóla- og frístundaráð fellst á breytingartillögur menningar- og safnanefndar og vísar reglunum til samþykktar í bæjarstjórn.
Fundi slitið - kl. 10:20.