Grindavíkurbær
Frístunda- og menningarnefnd - Fundur 108
06.10.2021 - Slóð
**108. fundur frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 6. október 2021 og hófst hann kl. 16:00.**
Fundinn sátu:
Garðar Alfreðsson, aðalmaður, Þórunn Erlingsdóttir, aðalmaður,
Alexander Veigar Þórarinsson, aðalmaður, Irmý Rós Þorsteinsdóttir, formaður,
Sigríður Etna Marinósdóttir, aðalmaður og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Fundargerð ritaði: Eggert Sólberg Jónsson, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
**1. Athugun á kostum þess að leggja gervigras á Grindavíkurvöll - 2103063**
Skýrsla starfshóps sem vann forathugun á því hvort breyta eigi Grindavíkurvelli frá náttúrulegu grasi yfir í gervigras lögð fram. Nefndin þakkar vel unna skýrslu. Gervigrasvöllur kæmi að mati nefndarinnar til með að nýtast vel til æfinga og keppni. Mikilvægt er þó að horfa á heildarskipulag íþróttasvæðisins til næstu áratuga. Nefndin hvetur bæjarstjórn til að forgangsraða framkvæmdum á íþróttasvæðinu í þágu barna og ungmenna og horfa til gervigrasvallar og sundlaugar.
**2. Kort af göngu- og hjólaleiðum í Grindavík - 2109138**
Drög að korti sem sýnir göngu- og hjólaleiðir í Grindavík lagt fram.
**3. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2021 - 2101003**
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um framkvæmd Vinnuskóla Grindavíkurbæjar 2021 lagt fram.
**4. Starfsemi Kvikunnar 2021 - 2109133**
Samantekt verkefnastjóra framtíðarþróunar Kvikunnar um starfsemina í húsinu það sem af er ári 2021 lögð fram. Nefndin fagnar því starfi sem unnið hefur verið í Kvikunni undanfarið við erfiðar ytri aðstæður.
**5. Lýðheilsuteymi - 4 - 2109012F **
Fundargerð 4. fundar lýðheilsuteymis Grindavíkurbæjar lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:20.
Bæjarráð / 24. júní 2022
[Fundur 1613](/v/25876)
Skipulagsnefnd / 24. júní 2022
[Fundur 102](/v/25874)
Bæjarráð / 15. júní 2022
[Fundur 1612](/v/25865)
Bæjarstjórn / 8. júní 2022
[Fundur 529](/v/25839)
Bæjarráð / 25. maí 2022
[Fundur 1611](/v/25805)
Fræðslunefnd / 24. maí 2022
[Fundur 119](/v/25804)
Bæjarstjórn / 11. maí 2022
[Fundur 528](/v/25760)
Frístunda- og menningarnefnd / 11. maí 2022
[Fundur 115](/v/25756)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25736)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25735)
Bæjarráð / 4. maí 2022
[Fundur 1610](/v/25730)
Skipulagsnefnd / 3. maí 2022
[Fundur 101](/v/25727)
Hafnarstjórn / 2. maí 2022
[Fundur 482](/v/25716)
Bæjarstjórn / 27. apríl 2022
[Fundur 527](/v/25704)
Skipulagsnefnd / 20. apríl 2022
[Fundur 100](/v/25688)
Bæjarráð / 20. apríl 2022
[Fundur 1609](/v/25687)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 118](/v/25672)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 117](/v/25671)
Bæjarráð / 6. apríl 2022
[Fundur 1608](/v/25656)
Bæjarráð / 31. mars 2022
[Fundur 1605](/v/25642)
Bæjarstjórn / 30. mars 2022
[Fundur 526](/v/25639)
Bæjarráð / 23. mars 2022
[Fundur 1607](/v/25620)