Fjarðabyggð
Mannvirkja- og veitunefnd - 9
**1. 2301058 - Eignarsjóður 735 íþróttarhúsið Eskifirði**
|Lögð fram til kynningar úttekt á íþróttahúsinu á Eskifirði. Mannvirkja- og veitunefnd felur framkvæmdasviði að láta vinna heildarúttekt á húsnæðinu og leggja fram úrbótaáætlun með kostnaðaráætlun vegna framkvæmdanna og leggja fyrir nefndina að nýju.|
**2. 2301057 - Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði**
|Lagt fram til kynningar minnisblað um niðurstöður á rakaskoðun í grunnskólanum á Eskifirði. Mannvirkja- og veitunefnd felur framkvæmdasviði að láta vinna heildarúttekt á húsnæðinu og leggja fram úrbótaáætlun með kostnaðaráætlun vegna framkvæmdanna og leggja fyrir nefndina að nýju.|
**3. 2210032 - Erindi frá íbúum í Breiðablik**
|Framlagt erindi frá íbúum í Breiðablik í Neskaupstað um aðstöðu þeirra í húsnæðinu og ráðstöfun þess. Mannvirkja- og veitunefnd felur framkvæmdasviði að fara yfir erindið í samstarfi við félagsmálanefnd og ræða við íbúa og leggja fyrir að nýju.|
[Bréf frá Íbúum í Breiðabliki 22.9.2022.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=GPzWm7nyBUt9CpFNhWtag&meetingid=d7xHYfp0kCijuglJdHpqQ1
&filename=Bréf frá Íbúum í Breiðabliki 22.9.2022.pdf)
**4. 2211146 - Úttekt á stöðu og framtíðarhorfur nýtingar jarðhita til húshitunar**
|Að beiðni Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins (URN) hefur ÍSOR (Íslenskar orkurannsóknir) tekið sér að gera úttekt á stöðu nýtingar og framtíðarhorfum hjá hitaveitum landsins. Lagt fram til kynningar bréf þar sem gerð er grein fyrir þessu verkefni.|
Mannvirkja- og veitunefnd felur forstöðumanni veitna að vinna framtíðarsýn fyrir Hitaveitu Eskifjarðar og skoða frekari möguleika á jarðhita nýtingu í Fjarðabyggð.
**5. 2205136 - 735 Bleiksárhlíð 55 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi og stækkun lóðar**
|Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Bleiksárhlíð 55, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning. Nefndin vísar málum er varðar aðgengi að íbúðarhúsinu áfram til mannvirkja- og veitunefndar. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir að íbúar að Bleiksárhlíð 55, Eskifirði geri aðgengi að húsinu er rúmast innan lóðarstækkunarinnar með fyrirvara um skriflegt samþykki aðliggjandi lóðarhafa.|
**6. 2211164 - Reglubundið eftirlit - Drög að eftirlitsskýrslu vegna Fjarðabyggð Rimi Mjóafirði_Fjarðabyggð Rimi Mjóafirði**
|Lögð fram til kynningar eftirlitsskýrsla á urðunarstaðnum Rima í Mjóafirði frá Umhverfisstofnun|