Suðurnesjabær
Fræðsluráð
= Fræðsluráð =
Dagskrá
Áheyrnarfulltrúar: Hanna Þórsteinsdóttir leikskólastjóri boðaði forföll, Hafrún Ægisdóttir leikskólakennari boðaði forföll, Anna Marta Þorsteinsdóttir foreldri í leikskóla, Eva Sveinsdóttir skólastjóri boðaði forföll, Kolbrún Ósk Ásgeirsdóttir grunnskólakennari og Jóhanna Pálsdóttir foreldri úr grunnskóla.
=== 1.Starfsáætlun leikskólans Gefnarborgar 2022-2023 ===
1901013
Starfsáætlun leikskólans Gefnarborgar fyrir skólaárið 2022-2023 lög fram. Fræðsluráð staðfestir starfsáætlunina sem verður aðgengileg á heimasíðu skólans. Fræðluráð vill leggja áherslu á að starfsáætlun á að hafa borist fyrir 1. október ár hvert.
=== 2.Starfsáætlun leikskólans Sólborgar 2022-2023 ===
1901013
Starfsáætlun leikskólans Sólborgar fyrir skólaárið 2022-2023 lög fram. Fræðsluráð staðfestir starfsáætlunina sem verður aðgengileg á heimasíðu skólans. Fræðluráð vill leggja áherslu á að starfsáætlun á að hafa borist fyrir 1. október ár hvert.
=== 3.Kynning á niðurstöðum könnunar varðandi frístundaiðkunn barna í Suðurnesjabæ ===
2209040
Rut Sigurðardóttir deildarstjóri frístundaþjónustu kynnti niðurstöður könnunar varðandi frístundaiðkunn barna í Suðurnesjabæ. Fræðsluráð leggur til að þetta verkefni verði tilraunakeyrt sem fyrst til að fá reynslu á verkefnið.
=== 4.Stefnumótun um dagvistun barna í Suðurnesjabæ - áfangaskýrlsa ===
2211013
Formaður fræðsluráðs lagði fram til kynningar áfangaskýrslu stýrihóps um stefnumótun um dagvistun barna í Suðurnesjabæ og bað deildarstjóra fræðsluþjónustu um að segja frá vinnu stýrihópsins.
=== 5.Leikskólinn Sólborg - húsnæði ===
1901013
Formaður fór yfir stöðuna á ástandi húsnæðis leikskólans Sólborgar.
=== 6.Nýr leikskóli við Byggðaveg ===
1901013
Formaður fór yfir stöðu framkvæmda við byggingu nýs leikskóla. Verklok eru áætluð í desember 2023.
=== 7.Reglur um úthlutun fjármagns vegna sérkennslu og stoðþjónustu í leikskólum. ===
2212036
Lagt fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fundi slitið - kl. 10:00.